Vikan - 23.07.1998, Page 46
Það hringdi í mig
strákur í vikunni
og bar sig illa,
hann sagðist
ekki vilja koma
og ræða vanda sinn, þetta
væri svo vandræðalegt. Ég
þóttist vita hvað klukkan sló,
hafði smátíma aflögu og
spurði hann hvort hann gæti
þá talað núna. Viti menn,
þetta var kynlífsvandamál.
Það sem var enn dæmigerð-
ara var að hann átti í vand-
ræðum með bráð sáðlát, svo
mikið, að honum fannst til
vandræða og gerði honum
erfitt fyrir í samskiptum við
stelpurnar. Hann fékk það
jafnvel áður en nokkrar sam-
farir byrjuðu. Hann var nú á
föstu og vildi gera eitthvað í
málinu. Honum fannst að
eitthvað yrði að gera.
í raun er ótrúlega sjaldan
sem menn leita sér ráða við
þessu máli miðað við það
hve algengt það er. Líkast til
ræða karlar þetta oftar sín á
milli en við sinn lækni.
En vitið þið hvað strákar.
Það er heilmikið hægt að
gera og mikið til af hjálpar-
bókum um þetta málefni.
Þið áttið ykkur á að þið eruð
alls ekki einir og flestum
tekst að ná tökum á þessu og
það fyrr eða síðar. Ég ætla
að fara yfir eina aðferð með
ykkur hér á eftir, sem er
rosalega einföld og þið getið
náð tökum á vandanum með
henni á u.þ.b. þremur vikum.
Það sem þið þurfið að gera
er að stoppa sáðlátið áður en
það verður. Þegar þið hafið
náð tökum á því getið þið
jafnvel fengið fullnægingu án
sáðláts og haldið áfram samt.
Það sem þið þurfið að gera
er að æfa einn ákveðinn
vöðva. Við skulum ekki
flækja málið með einhverj-
um lýsingum á líffærafræði
eða myndum. Við skulum
heldur finna vöðvann. Þetta
er vöðvinn sem þið notið til
að stoppa þvagbununa, þ.e.
þegar þið pissið. Prófið næst
þegar þið pissið að stoppa
bununa og byrja nokkrum
sinnum. Þá hafið þið fundið
vöðvann. Það sem þið gerið
nú er að spenna og slaka á
þessum vöðva eins og þið
séuð að æfa lyftingar. Gerið
þetta tuttugu sinnum í einu,
þrisvar á dag. Þið getið gert
þetta hvar sem er því enginn
sér ykkur spenna vöðvann.
Síðan farið þið að prófa að
stoppa sáðlátin þegar ykkur
finnst þau vera að koma,
stoppið náttúrulega alla ert-
ingu á meðan og spennið
vöðvann. Þið náið tökunum
á þessu og sumir fara að fá
fullnægingu oftar en einu
sinni. Þetta er ein aðferð,
einföld og á að geta gagnast
mörgum.
Gangi ykkur vel.
Þorsteinn
46