Vikan - 29.03.1999, Síða 22
HVERNIG HELDURÐU STREITUNNI NIÐRI?
HALTU STREITUDAGBÓK ANDAÐU RÉTT
GRÍPTU DAGINN
Hvernig bregstu við streitu? Miss-
irðu stjórn á skapi þínu, ræðstu á ís-
skápinn eða dregurðu þig inn í skel
þína? Haltu streitudagbók í tvær vikur
og skrifaðu hjá þér hvar og hvenær
streitan hellist yfir þig. Er það eitt-
hvað sérstakt sem hleypir henni af
stað? Hvernig líður þér? Ertu reiður
eða bugaður? Og hvernig bregstu við?
Með því að kynnast streitupersónu-
leika þínum og læra að þekkja hvað
það er sem spennir þig upp, geturðu
kæft streitukast í fæðingunni.
Róleg öndun er oft eitt það fyrsta
sem fer forgörðum þegar streitan tek
ur völdin. Öndun verður gjarnan
stirð eða grunn þegar fólk er
spennt og séum við í kvíðakasti
gætum við farið að ofanda. Svona
ferðu að:
Dragðu djúpt að þér
andann. Haltu niðri í þér
andanum í 20 sekúndur.
Settu næst stút á munn-
inn eins og þú ætlir að
flauta (ekki blása út
kinnarnar), og and-
aðu örlitlu lofti út af
miklum krafti. Bíddu and-
artak, andaðu svo út aftur
og haltu áfram þar til þú
hefur andað öllu loftinu
frá þér.
Rannsóknir leiða í ljós að fólk sem
skýtur skyldustörfum og vandamál-
um á frest þjáist af meiri streitu
en þeir sem halda settan tíma-
frest. Þeir fyrrnefndu eru einnig
líklegri til að þjást af sektar-
kennd, reiði og lágri sjálfs-
virðingu og af höfuðverkj-
um, magaverkjum og kvef-
pestum.
Reyndu að taka á
\ J skilaboðum og reikning-
um um leið og þeir koma.
Ef þú ert að drukkna í heim-
ilisstörfum, skaltu leita
hjálpar hjá fjölskyldumeðlim-
um eða fagfólki.
HVAÐA STARFSSTÉTTIR ERU
I MESTRI STREITUHÆTTU?
1. Fangaverðir 17. Þeir sem starfa
2. Lögregla við hótelstörf
3. Félagsráðgjafar 18. Þeir sem aka
4. Kennarar almenningsfarar-
5. Sjúkrabílstjórar tækjum
6. Hjúkrunarkonur
7. Læknar
8. Slökkvilið
9. Tannlæknar
10. Byggingar-
vinnumenn
11. Forstjórar
12. Leikarar
13. Blaðamenn
14. Tungumálasér-
fræðingar
15. Kvikmynda-
framleiðendur
16. Fagfólk í
íþróttum
22 Vikan
MÆLDU DAGLEGA STREITU í VINNUNNI
Dragðu hring um þá tölu sem best segir til um þær aðstæður sem geta
verið streituvaldar í starfi.
lítil strcita streita mikil streita
Erfiður viðskiptavinur 0 1 2 3 4 5
Eftirvinna 0 1 2 3 4 5
Stöðugar truflanir fólks 0 1 2 3 4 5
Erfiður yfirmaður 0 1 2 3 4 5
Tímapressa 0 1 2 3 4 5
Skrifræði innan starfs 0 1 2 3 4 5
Tölvan bilar 0 1 2 3 4 5
Rifrildi við samstarfsfólk 0 1 2 3 4 5
Of mikið að gera í einu 0 1 2 3 4 5
Símatruflanir 0 1 2 3 4 5
Ferðir í og úr vinnu 0 1 2 3 4 5
Ferðir tengdar starfinu 0 1 2 3 4 5
Eigin mistök 0 1 2 3 4 5
Starf truflar fj ölsky ldulif 0 1 2 3 4 5
Ræð ekki við verkefnamagn 0 1 2 3 4 5
Get ekki sagt nei 0 1 2 3 4 5
Ekki næg hvetjandi verkefni 0 1 2 3 4 5
Of margir fundir Þurfa að segja erfiða hluti 0 1 2 3 4 5
við samstarfsfólk Samhæfa verkefni við 0 1 2 3 4 5
yfirmann eða samstarfsfólk 0 1 2 3 4 5
Teldu saman og sjáðu við hvaða streitumörk þú býrð á vinnustað:
80-100 Það er mikil streita á mörgum sviðum í starfinu.
Leitaðu þér hjálpar.
50-79 Það er töluverð streita hjá þér. Hún liggur í sumum en ekki
öllum þáttum starfsins.
20-49 Það eru einstaka streituvaldar í starfinu.
0-19 Þér líkar vel í vinnunni og þú býrð við litla eða enga streitu.