Vikan - 29.03.1999, Side 26
U t i v e
Æfíng 1. Kreppið hnefann á göngunni, láfið handleggina mynda u.þ.b. 90° horn og
sveiílið þeim duglega fram og aftur. Krepptur hncfinn eykur átak upphandlcggsvöðva
og svciflan þjálfar bolinn, liðkar mittið og minnkar uniniál þess. Sc þetta alltaf gert á
göngu munar mikið um það því eins og Arný bendir á gerir margt sinátt eitt stórt.
vorí'ó
Með vorinu fer
flesta íslendinga
að langa út eftir
mikla innveru allan vetur-
inn. Arný Helgadóttir,
hjúkrunarfræðingur og
íþróttaþjálfari, er hins vegar
ein af þeim sem er úti allt
árið. Hún þjálfar kraft-
gönguhópa sem hita upp í
Perlunni og ganga síðan um
Öskjuhlíðina. Árný segir
líkamsþjálfun vera undir-
stöðu þess að halda góðri
heilsu. Hún bendir á að
þeir sem stundi líkamsþjálf-
un njóti þeirra lífsgæða,
sem felast í liðugum líkama
og auknu þoli, mun lengur
en hinir. Þar sem hún er
hjúkrunarfræðingur þekkir
hún vel áhrif hreyfingar á
hjarta, blóðrás, blóðþrýst-
ing, hormóna og fitu-
brennslu. Hún segir útiveru
mikilvægan þátt í líkams-
þjálfun, hreint loft, ómeng-
uð náttúra og fegurð lands-
ins séu ómetanleg. Góð
áhrif íslenskrar náttúru á
andlega líðan verði seint of-
metin og Árný er ekki í
vafa um að þeir sem njóti
útiveru á Islandi finni síður
til streitu og álags en aðrir.
Hún vill þó minna þá,
sem eru að byrja, á að fara
hægt af stað. Framhaldið
ræðst af því hvernig lagt er
upp. Ef menn fara of ört af
stað sprengja þeir sig gjarn-
an og hætta fljótt. Hún
bauðst til að sýna okkur
nokkur góð dæmi sem nýt-
ast vel til að komast í form
fyrir vorið.
26 Vikan
Texti: Steingerður Steinarsdóttir
Myndir: Gunnar Gunnarsson