Vikan - 29.03.1999, Side 34
NÓI SÍRÍUS
Uppskrift Vikunnar
er tvöföld að þessu
sinni.
Annars vegar er um að
ræða sveskjutertu sem hent-
ar vel með kaffinu eða sem
eftirréttur og hins vegar
heslihnetubombur sem eru
fljótgerðar og ljúffengar
smákökur.
Það var Birna Jóhanncs-
dóttir, Bergþórugötu 33,
Reykjavík sem sendi okkur
uppskriftirnar og hún fær að
launum veglegan konfekt-
kassa frá Nóa Síríus.
Sveskjuterta,
meðlæti á kaffiborð eða
eftirréttur.
Undirlag:
350 g steinlausar sveskjur
(skornar í 3-4 bita hver)
250 g epli (skorin í bita)
1 dl púðursykur
1/2 msk. kanill
1/4 msk. brúnkökukrydd
1/2 tsk. negull
6-8 plötur After eight
sútkkulaði
(skornar í 4 bita hver)
Öllu hráefninu í undirlag-
inu, nema súkkulaðiplötun-
um, er hrært lauslega
saman. Þetta er sett í
eldfast mót og niður-
skornum After eight
plötunum dreift yfir. Sett
inn í 200°c heitan ofn og
bakað í 12-15 mínútur.
A meðan þetta bakast er
yfirlagið búið til.
Yfirlag:
3 egg
1 1/2 dl púðursykur
11/2 dl hveiti
1 1/2 tsk lyftiduft
1 dl kornflögur
1 dl kókósmjöl
1 dl hesli-
hnetuflögur
(8-io Aft-
er eight
plötur skornar
í tvennt horn í
horn).
Egg og púðursykur er
hrært þar til það er orðið
létt og ljóst. Síðan er öllu
hinu bætt varlega úti. Þá er
undirlagið tekið úr ofninum
og yfirlaginu hellt yfir og
þetta bakað áfram þar til yf
irlagið er gegnbakað (u.þ.b.
25-30 mínútur).
Raðið súkkulaðiplötunum
ofan á um leið og þið takið
sveskjutertuna út úr ofnin-
um. Ef vill má setja After
eight plöturnar ofan á þegar
ca. 10 mínútur eru eftir af
bökunartímanum. Kakan
getur fallið ef þetta er gert,
en hún verður ekkert
bragðverri fyrir það.
Kakan er borin fram með
þreyttum rjóma. Hún er
góð bæði heit og köld.
í stað þess að nota
sveskur og epli má t.d.
nota epli eingöngu 2)
epli, banana og appel-
sínur 3) jarðarber
og/eða bláber 4)
perur.
í stað Af-
ter eight
er hægt
að nota
appel-
sínusúkkulaði
eða þá bara venju-
legt suðusúkkulaði.
Heslihnetubombur
1 bolli heslihnetuflögur
3/4 bolli haframjöl
1 3/4 bolli hveiti
175 g smátt brytjað
súkkulaði
2 egg
125 g smjörlíki
3/4 tsk matarsódi
1/4 tsk salt
1/2 dl vatn efþarf
Deigið er hnoðað saman
og mótaðar úr því litlar kúl-
ur, sem settar eru á smjör-
pappír á bökunarplötu.
Þrýst lítillega ofan á þær.
Kökurnar eru síðan bakað-
ar í u.þ.b. 15 mínútur við
200°c.
Til hátíðabrigða má dýfa
köldum kökunum í brætt
súkkulaði og strá rifnum
heslihnetum yfir. Uppskrift-
in dugir í u.þ.b. 40 kökur.
34 Vikan