Vikan


Vikan - 29.03.1999, Side 37

Vikan - 29.03.1999, Side 37
Grœnt og vœnt .Blom liorlcnsi- í%; | unnur cru livít, ráuð, lilcik cða blá. (Ljósniynd Bragi Þór Jóscl's Friða Björnsdóttir Vikan 37 Hortensían er orðin ómissandi hluti af vor- biómaflórunni hér á landi. Þessi fallega planta var sérlega vinsæl í gamla daga en svo hvarf hún gjörsamlega af sjónarsviðinu hér en skaut aftur upp kollinum fyr- ir þónokkrum árum. Því miður er hún í hópi heimilisblómanna sem heldur illa gengur að halda í lífi, en hún á þó að geta lifað ef rétt er að farið. Hitinn og blóminn Það er aldrei of oft minnt á það að hitinn innan dyra hjá okkur er margri plöntunni skeinuhættur. Ekki er síð- ur óhollt fyrir plöntur að standa í gluggakistunni á vet- urna þar sem hitinn streymir upp af ofninum, en þegar ofar dregur í gluggann kólnar skyndilega svo hitamunurinn verður mjög mikill efst og neðst. Við þessar aðstæður tapast mikill raki úr plöntunni. plöntuna dálítið. Undir haustið, ef hún er enn á lífi, er gott að setja hana niður í kjallara eða í geymsluna þar sem hún er látin vera fram eftir vetri. Á þessum tíma þarf hún litla vökvun, en þó má hún alls ekki skrælna upp svo að blöð og leggir nái að visna. I janúar eða febrúar er rétt að taka hort- ensíuna fram aftur og fyrstu vikurnar á hún að standa á fremur köldum stað. Best er að hitinn fari ekki yfir 10 til 12° en slíkt getur verið heldur erfitt í híbýlum nú til dags þar sem alltaf er helst til heitt fyrir gróðurinn. Flestir geta þó sett blómið í norðurglugga eða jafnvel gangaglugga þar sem ekki er eins heitt og annars stað- ar og hentar því vel. Eftir nokkrar vikur er óhætt að færa plöntuna á heitari stað. í Suður-Evrópu og annars staðar þar sem loftslagið er nægilega heitt vex hortensí- an utan dyra. Það gildir meira að segja um Þýska- land þar sem hún verður hátt í tveggja metra há. Tæpast þýðir þó fyrir okkur að setja hortensíuna út und- ir bert loft, en ekkert gerði nú til að prófa það, svona í eitt skipti, en þá yrði auð- vitað að velja henni hlýjan og skjólsælan stað. í blóma- stofunni fer hún að sjálf- sögðu vel, ekki síður en inni á stofuborði. Hortensían þolir ekki mikla sól, og þess vegna verður að láta hana standa í skugga, til dæmis í norður- glugga. Á meðan plantan er í blóma má hún alls ekki þorna og best er að vökva hana með 25 til 30° heitu vatni. Sennilega er árang- ursríkast að hella vatninu í skálina undir pottinum og láta plöntuna sjúga það upp þannig að moldin gegn- blotni. Á köldum stað yfir veturinn Eftir að blómgunartíminn er liðinn er best að klippa

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.