Vikan - 29.03.1999, Qupperneq 37
Grœnt og vœnt
.Blom liorlcnsi-
í%; | unnur cru livít,
ráuð, lilcik cða
blá. (Ljósniynd
Bragi Þór Jóscl's
Friða
Björnsdóttir
Vikan 37
Hortensían er
orðin ómissandi
hluti af vor-
biómaflórunni
hér á landi. Þessi
fallega planta var
sérlega vinsæl í
gamla daga en
svo hvarf hún
gjörsamlega af
sjónarsviðinu hér
en skaut aftur
upp kollinum fyr-
ir þónokkrum
árum. Því miður
er hún í hópi
heimilisblómanna
sem heldur illa
gengur að halda í
lífi, en hún á þó
að geta lifað ef
rétt er að farið.
Hitinn og blóminn
Það er aldrei of oft minnt á það að hitinn innan dyra
hjá okkur er margri plöntunni skeinuhættur. Ekki er síð-
ur óhollt fyrir plöntur að standa í gluggakistunni á vet-
urna þar sem hitinn streymir upp
af ofninum, en þegar ofar dregur í
gluggann kólnar skyndilega svo
hitamunurinn verður mjög mikill
efst og neðst. Við þessar aðstæður
tapast mikill raki úr plöntunni.
plöntuna dálítið. Undir
haustið, ef hún er enn á lífi,
er gott að setja hana niður í
kjallara eða í geymsluna þar
sem hún er látin vera fram
eftir vetri. Á þessum tíma
þarf hún litla vökvun, en þó
má hún alls ekki skrælna
upp svo að blöð og leggir
nái að visna. I janúar eða
febrúar er rétt að taka hort-
ensíuna fram aftur og fyrstu
vikurnar á hún að standa á
fremur köldum stað. Best er
að hitinn fari ekki yfir 10 til
12° en slíkt getur verið
heldur erfitt í híbýlum nú til
dags þar sem alltaf er helst
til heitt fyrir gróðurinn.
Flestir geta þó sett blómið í
norðurglugga eða jafnvel
gangaglugga þar sem ekki
er eins heitt og annars stað-
ar og hentar því vel. Eftir
nokkrar vikur er óhætt að
færa plöntuna á heitari stað.
í Suður-Evrópu og annars
staðar þar sem loftslagið er
nægilega heitt vex hortensí-
an utan dyra. Það gildir
meira að segja um Þýska-
land þar sem hún verður
hátt í tveggja metra há.
Tæpast þýðir þó fyrir okkur
að setja hortensíuna út und-
ir bert loft, en ekkert gerði
nú til að prófa það, svona í
eitt skipti, en þá yrði auð-
vitað að velja henni hlýjan
og skjólsælan stað. í blóma-
stofunni fer hún að sjálf-
sögðu vel, ekki síður en inni
á stofuborði.
Hortensían þolir ekki
mikla sól, og þess vegna
verður að láta hana standa í
skugga, til dæmis í norður-
glugga. Á meðan plantan er
í blóma má hún alls ekki
þorna og best er að vökva
hana með 25 til 30° heitu
vatni. Sennilega er árang-
ursríkast að hella vatninu í
skálina undir pottinum og
láta plöntuna sjúga það upp
þannig að moldin gegn-
blotni.
Á köldum stað yfir
veturinn
Eftir að blómgunartíminn
er liðinn er best að klippa