Vikan - 29.03.1999, Blaðsíða 41
Texti: Halla Bára Gestsdóttir
Myndir: Gunnar Sverrisson
_____________________ 1 Æ'tí _
Guðrún Jóhannesdóttir prjónar ýmislegt fleira en sokka og vettlinga
Þeir sem eru
duglegir að
prjóna, langar
að breyta að-
eins til og snúa
sér að öðru en
peysum, hosum
og vettlingum,
ættu að líta á
nýjasta verk
Guðrúnar. Hún
tók sig til og
prjónaði hús-
ganginn um
buxurnar, vest-
ið, brókina og
skóna og setti
upp í fallega
11 mr
Guðrún með
barnabarnið
Guðmund Örn.
í stað þess að
gefa bókina í
leikskóla, og
láta börnin
læra húsgang-
inn, þá lenti
hún upp í hillu
því hún þótti
of fín fjrir litla
fíngur. I dag
eru það barna-
börnin sem fá
! að skoða bók-
ina hjá ömmu.
'pphaflega ætlaði ég
mér að gefa verkið
til leikskóla svo að
krakkarnir gætu flett bók-
inni og lært þennan hús-
gang, en hún þótti of fín fyr-
ir margar litlar hendur,
þannig að hún er komin
upp í bókahillu hjá mér,“
segir Guðrún sem í dag sýn-
ir barnabörnunum afrakstur
verks síns.
Guðrún fékk hugmyndina
að prjónuðum húsgangi fyr-
ir mörgum árum þegar hún
var að læra að vefa. Þá lang-
aði hana til að vefa vísu í
teppi, en það var hægara
sagt en gert, og erfitt að
finna til húsgang sem rúm-
ast gæti sem mynstur í
teppi. Hún prófaði því að
prjóna teppi og festa utan á
það prjónuð föt skv. vísunni
og hugmyndin gekk upp þó
Guðrún væri ekki alveg
nógu ánægð með verkið.
Það blundaði því alltaf í
henni að koma vísunni frá
sér og í vetur lét hún verða
að því.
„Ég ákvað að prjóna fötin
sem nefnd eru í vísunni,
setja þau upp á harðspjöld
og láta bindaþau inn af
bókbindara. Ég hafði enga
fyrirmynd þegar ég byrjaði
á verkinu, þetta var eitt-
hvað sem ég spann upp úr
mér og ég prjónaði úr því
garni sem ég átti til. Svona
eftir á að hyggja þá er ég
bara ánægð með hvernig til
tókst,“ segir Guðrún sem
áreiðanlega reynir að finna
sér annan húsgang að
prjóna en vísuna:
Buxur, vesti, brók og skór,
bœtta sokka nýta,
húfutetur, húlsklút þó,
háleistana hvíta.
Húsgangurinn kem-
ur vel út í bók og
hver veit nema ann-
ar prjónaður hús-
gangur eigi eftir að
líta dagsins ljós inn-
. an tíðar. Hér eru
sýnishorn úr bókinni
hennar Guðrúnar.
Vikan 41