Vikan


Vikan - 29.03.1999, Síða 51

Vikan - 29.03.1999, Síða 51
Úr myndasafni Fróöa. Fyrir- sætan á mynd- inni tengist ekki efni sögunnar. „sonar míns“. Það var svo margt sem passaði ekki inn í mynstrið. Eg fór að for- vitnast urn ættingja mömmu hans og var fyrr en varði kominn á fullt í einhvers konar njósnastarfsemi að því er mér fannst. Og það stóð allt heima, þessi dreng- ur gat varla verið sonur okkar tveggja nema það væri einhvers staðar gen sem við þekktum ekki. Ég barðist lengi við sjálf- an mig. Atti ég að þegja og halda áfram að vera pabbi litla drengsins sem mér var farið að þykja svo vænt um? Var það honum til góðs að vera rangfeðraður bara af því að mér þótti vænl um hann? Hvað nreð mig,- átti ég að borga meðlag öll þessi ár ef ég var ekki faðir hans? Og hvað ef ég eignaðist önnur börn seinna? Ég ákvað að tala við mömmu hans og segja henni að ég vildi að það yrðu teknar blóðprufur til að kanna hvort drengurinn væri rétt feðraður. Hún sleppti sér alveg. Fyrst rak hún mig á dyr og hótaði mér að ég fengi aldrei að sjá hann framar. Næsta skipti grét hún og spurði hvernig ég gæti gert barninu þetta eftir öll þessi ár. Ég sagði henni mína skoðun og að ég héldi að það væri barninu ekki til góðs að vera rang- feðrað alla ævina. Ég sagði henni líka að ef hún sam- þykkti þetta ekki með góðu þá myndi ég fara aðrar leið- ir þótt ég vissi ekki einu sinni sjálfur hvort þær væru til. Eftir nokkra unrhugsun samþykkti hún þetta og blóðprufan var gerð á okk- ur öllum þrem. Biðin eftir niðurstöðunum var mér rosalega erfið. Stundum vonaði ég að þær týndust, stundum vonaði ég innilega að hann væri sonur minn og stundunr bað ég þess eins að niðurstaðan mætti verða okkur til góðs hvernig sem hún yrði. En niðurstöðurnar komu mér ekki á óvart þótt þær væru ekki alveg klárar. Það voru hverfandi líkur á að drengurinn væri sonur minn. Okkur var sagt að það væri hægt að gera ná- kvæmari blóðprufur erlend- is og ég þáði það. Enn hófst bið og sú var ekki skárri en sú fyrri. Niðurstaðan úr henni var skýr. Ég átti ekki barnið. Sú martröð sem á eftir fylgdi var ólýsanleg. Ég var uppfullur af einhverjum undarlegum söknuði og ég var ofboðslega reiður út í konuna sem átti sök á þessu, - mömmu hans. Hana hlaut að hafa grunað allan tímann að ég ætti ekki barn- ið, hvernig gat hún gert þetta? Var hægt að leyfa sér að„velja“ föður að barni sínu á þennan hátt? Verst var samt að taka á skilnaðinum við „son minn“. Það varð að segja honum frá þessu, hann var orðinn það þroskaður. Það var miklu betra að gera þetta á þessu stigi en seinna og það var ég sem tók að mér þetta erfiða hlutverk. Ég gleymi aldrei hvað það var mér erfitt. Hann var hjá mér um helgi og ég sagði honum að ég væri ekki „al- vöru“ pabbi hans, hann ætti annan pabba en við mynd- um samt alltaf vera vinir. Hann vildi ekki skilja þetta og sagði að ég væri víst al- vöru pabbi sinn þótt ég ætti ekki heima hjá honum. Rétt áður en hann sofnaði tók hann um hálsinn á mér og sagði eins og til að hugga mig: „Þú er samt pabbi nrinn“. Ég grét sjálfur eins og krakki þetta kvöld og ákvað að láta aðskilnaðinn lesandi segir Jóhönnu Harðardóttur sögu sína Vilt þú deila sögu þinni með okkur? Er eitthvað !J sem hefur haft mikil áhrif ý á þig, jafnvel breytt lífi | þínu? Þér er velkomið að skrifa eða hringja til okkar. Við gætum fyllstu nafnleyndar. gerast hægt. Eftir þetta fækkaði þeim skiptum sem við hittumst. Ég tók hann áfram með mér heinr stundum og nokkrar helgar fékk hann að vera hjá „pabba og ömmu“ eins og hann kall- aði okkur mæðginin. „Son- ur minn“ óx svo frá mér á tæpu ári. Mamma hans gift- ist aftur þetta sama ár og nýi maðurinn gekk honum í föðurstað. Mér þótti samt alltaf vænt um hann og við héldum áfram að heilsast á götu. Ég missti alveg af honum í nokkur ár og hitti hann fyrir nokkrum árunr í flugvél á leið til Kaup- mannahafnar, hann var þá orðinn 18 ára gamall. Við tókum leigubíl saman og þá kynntunrst við eiginlega upp á nýtt. Ég spurði hvort hann væri búinn að fyrir- gefa mér að hafa skilið svona við hann. Hann játaði því og svaraði mér einhvern veginn á þennan hátt: „Ég er feginn að þetta kom upp nreðan ég var svona lítill, ég hefði ekki vilja lenda í þessu eftir að ég var byrjað- ur í skólanum“. Þetta er eitthvað það besta sem hefur verið sagt við mig urn dagana og mér þykir ennþá nrjög vænt um þennan dreng þótt ég eigi nú önnur börn. Mciiiiilisf'an}>ift cr: Vikan - „Líf'srcvnslusai>a“, Scljavcinir 2, 101 Rcykjavík, Ncfl'aiij*: vikaii@frodi.is

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.