Vikan - 29.03.1999, Side 56
Hverju svarar
lœknirinn ?
I’orsK'iim Njálssoii heiinilislæknir
Er ég með asma?
Kœri Þorsteinn
Ég er 13 ára stelpa og æfi
mikið íþróttir. Ég er alveg
sannfærð um að ég sé
með asma því ég á stund-
um mjög erfitt með önd-
un, sérstaklega þegar ég
er að hlaupa í fótbolta
sem er aðaláhugamálið
mitt. Ég þarf ekki að
hlaupa nema smá stund
þá á ég strax erfitt með að
anda. Þetta gerist helst
þegar ég er að hlaupa úti.
Hvað á ég að gera??
Hvernig get ég fengið að
vita hvort ég sé með
asma? Ég hef heyrt að ef
maður þvær sér mjög
mikið geti það leitt til
asma. Er það satt??
13 ára kvk.
Kœra 13 ára
Áreynsluasmi er þónokk-
uð algengur, en eins og orð-
ið bendir til stafar hann af
áreynslu. Asmi er mjög al-
gengur og oft erfitt að átta
sig á því hvað hefur sett
hann af stað. Hægt er að fá
asma við að skokka, taka á í
íþróttum og jafnvel í sundi.
Fjöldi asmatilfella fer vax-
andi í heiminum og stafar
það líklega af vaxandi
mengun, líka á Islandi. Við
asma dragast berkjurnar í
lungunum saman og það
verður erfiðara fyrir loftið
að komast að og frá lungun-
um. Þú verður þá fljótt móð
og þreytt og heyrir jafnvel
hvæs við öndunina.
Meðferð er nokkuð ár-
angursrík við áreynslu-
bundum asma, sk. púst eða
innsogslyf sem læknir ávísar
'ém
fyrir þig. Ég ráðlegg þér að
leita læknis til að fá með-
ferð við þessum einkennum
þínum sem benda til
áreynslubundins asma. Þú
átt ekki að gefast upp á
íþróttunum.
Kveðja
Þorsteinn
Þarf alltaf
að standa í
vinnunni
Kœri lœknir
Ég er kona sem
er að verða
fimmtug. Ég á
mjög erfitt með
að sofa á
nóttunni vegna
verkja í fótunum. Þessir
verkir leiða upp að
hnjám. Þar sem ég vinn er
lítið sest niður, en ef ég
fer í sund eða heita potta
þá nærri hverfa verkirnir.
Ég hef stundum sett púða
undir fæturna á nóttunni
og þá finn ég ekki eins
fyrir verkjunum. Ég finn
ekkert fyrir verkjunum á
daginn. Hvað er til ráða?
Ein nieð verki
Sœl
Fótaverkir eru mjög al-
gengt vandamál. Þeir eru al-
gengir á nóttunni og eru
ástæður ekki alltaf augljós-
ar, en langar stöður og setur
gera ástandið verra. Stöður
á hörðu gólfi eru slæmar og
kyrrstaða líka. Oft er ráð-
lagt að prófa að standa á
mjúku, t.d. gúmmímottu,
eða skipta öðru hverju um
skó í vinnunni. Öll hreyfing
er af hinu góða, göngutúr
eftir vinnu eða í hádeginu
getur dregið úr einkennum.
Stundum stafa fótaverkir af
sink- og fólínsýruskorti og
þá er gott að taka þau
vítamín inn. Einnig er oft
mælt með því að taka kalk
og magnesíum fyrir svefn,
allt að 1000 milligrömm af
kalki og 500 til
1000 milligrömm
af magnesíum.
Ráðlegt er að
draga verulega úr
eða hætta að neyta
koffíndrykkja
(kaffi, te, gos-
drykkir). Þá er
ráðlagt að hætta
öllum reykingum
ef þú ert með fóta-
verki, en reykingar hafa
slæm áhrif á blóðflæði til
fótanna. Það er sjaldgæft að
nokkur lyf virki á fótaverki,
helst eru það þó parkinson-
lyf, róandi lyf og almenn
verkjalyf. Ef ekkert af þessu
virkar á þig er rétt að leita
læknis. Stundum eru fóta-
verkir einkenni annarra
sjúkdóma, sykursýki, skjald-
kirlilsvandamála, nýrna-
sjúkdóma eða gigtarsjúk-
dóma.
Gangi þér vel
Þorsteinn
Spurningar má
senda til „Hverju
svarar læknirinn?“
Vikan, Seljavegi 2,
101 Reykjavík.
Farið er með öll
bréf sem
trúnaðarmál og
þau birt undir
dulnefni.
56 Vikan