Vikan - 22.06.1999, Blaðsíða 8
Texti: Margrét V. Helgadótir
Myndir: Hreinn Hreinsson
ífinu núna o
siöunda him
Þeir eru margir
sem reka upp stór
augu þegar þeir
taka bensín í
Shellstöðinni í
Borgarnesi. Þar
stendur engin
önnur við dæluna
en Unnur Halldórs
dóttir, einn ötulasti
talsmaður foreldra
fyrir bættum
skóla. Hún hóf sitt
sjötta líf síðastlið
ið haust þegar hún
flutti ásamt sínum
heittelskaða í
sveitasæluna og
sér ekki eftir því.
Sagan á bak við flutning-
inn í Borgarfjörð er ekki
löng. Eiginmaður Unn-
ar, Hjörtur Árnason, var
rekstrarstjóri hjá Shell um
árabil og þekkti því bensín-
stöðvarnar á landsbyggðinni
vel. Hann tók við rekstrinum
fyrir tveimur árum en Unnur
var ekki tilbúin að flytja strax
með honum. Hún þurfti að
ljúka verkefnum fyrir Heimili
og skóla auk þess sem yngsta
barnið var ennþá í framhalds-
skóla. Síðastliðið haust fluttu
foreldrarnir endanlega að
heiman, eins og þau segja
sjálf. Þau yfirgáfu börnin sín,
en ekki börnin hreiðrið, eins
og gerist hjá flestum öðrum.
Börnin eru fjögur, á aldrin-
um 20-27 ára. Unnur og
Hjörtur er ekki ennþá búin að
fá það virðingarhlutverk að
vera amma og afi en tvær kan-
ínur eru næstar því að teljast
til barnabarna.
Unnur gaf sér tíma til að
setjast niður með kaffi og
súkkulaði í örskamma stund
og segja lesendum Vikunnar
frá viðburðaríku lífi sínu.
Það er ekki úr vegi að
spyrja fyrst um það hlutverk
sem Unnur er þekktust fyrir.
Hver er saga samtakanna
Heimili og skóli og af hverju
fór hún að starfa með samtök-
unum?
„Svavar Gestsson, fyrrver-
andi menntamálaráðherra,
vildi efla foreldrahreyfinguna
í landinu. Hann hafði þá
kenningu að ef foreldrarnir
myndu rísa upp og krefjast
betri skóla fyrir börnin sín, þá
yrðu stjórnmálamenn að setja
peninga í skólamálin. Til að
foreldrar gætu risið upp yrðu
þeir að sameinast og fylkja
liði. Við vorum nokkur sem
vorum send í hringferð um
landið til að kanna jarðveginn
fyrir stofnun landssamtaka.
Eg var svo lánsöm á þeim
tíma að geta hrint þessum
draumi í framkvæmd og eiga
þátt í að móta samtökin en
þau byggjast á einstaklingsað-
ild, eins og Neytendasamtök-
in. Við stofnuðum Heimili og
skóla 1992 og ég var formaður
og framkvæmdarstjóri fyrstu
fjögur árin. Jónína Bjartmars
tók við formennskunni árið
1996 en ég sat sem fram-