Vikan


Vikan - 22.06.1999, Blaðsíða 61

Vikan - 22.06.1999, Blaðsíða 61
OG FLUGI Söngkonan og fagurgalinn Carly Simon hefur átt erfitt ár en í fyrra upplýsti hún aö hún væri með, brjóstakrabbamein. Á sama tíma ákvaö hún aö gera breytingar á högum sínum og flutti frá New York til Boston. Hún sagðist ekki hafa efni á því að borga leiguna fyrir 11 her- bergja lúxusíbúð sína við Central Park. Hún keypti sér fjögurra hæða hús fyrir rúmar 100 milljónir króna og annað eins fór í endur- bætur. Nú hefur hún ákveðið að flytja aftur og húsið er falt fyrir 300 milljónir. Heimildir herma að Carly hafi veriö farin að fara i taugarnar á nágrönn- um sínum. Hún var reglu- lega með hljómsveitaræf- ingar heima hjá sér og ná- grannarnir voru farnir að kvarta yfir hávaðanum. Talsmaður söngkonunn- ar segir ákvörðunina um að flytja vera "einkamál" sem hafi hvorki með nágranna né veik- indi að gera. "Hún er alveg laus við krabbameinið," segir talsmaðurinn. Leikkonan unga, Juliette Lewis, er nú komin á fullt í leiklistinni á ný eftir að hafa fengist við eiturlyfjavandamál undanfarna mánuði. Lewis kom ung fram á sjónarsviðið og vakti at- hygli í myndunum Cape Fear og Hus- bands and Wives. Hún var líka kærasta hjartaknúsarans Brad Pitt í fjögur en þau hættu saman árið 1994 og stúlkan var sár lengi á eftir. "Ég var mjög þunglynd og hleypti engum nálægt mér," segir Lewis en hún segir ástarsorgina ekki hafa hrakið sig út í eiturlyfin. "Sögur af dópneyslu minni hófust löngu áður en ég byrj- aði í dópinu. Þannig gengur þetta fyrir sig í Hollywood." Hún var bara 16 ára þegar hún byrjaði með Pitt en þau kynntust árið 1990 þegar þau léku saman í myndinni Too Young To Die? "Nú er ég 25 ára og finn hversu rosalega ung ég var þegar við byrjuðum saman. Hann var níu árum eldri." Þrátt fyrir ald- ursmuninn segir hún að þau hafi verið farin að gera langtímaáætlanir og ætluðu að kaupa sér hús saman. "Nú er ekkert illt á milli okkar en við tölumst samt ekki við og það finnst mér skrítið," segir Lewis. OLL LEYNDARMAUN Söngvarinn samkynhneigði, George Michael, er ekki ánægður með frænda sinn og fyrrum besta vin, Andreas Giorgio. Frændinn segist tilbúinn að segja frá öllum leyndar- málum söngvarans ef einhver bókaútgefandi sé tilbúinn að borga honum 5 milljónir dala fyrir öll subbulegu smá- atriðin. Ekkert skal dregið undan og Andre- as lofar gómsætum sögum af George, þ.á m. nýjum upplýsingum um handtöku hans í Los Angeles og furðulegt vinasamband hans við Geri Halliwell, fyrrver- andi Kryddpíu. Andreas segir að frændinn sé í raun harðstjóri en þeir urðu ósáttir á síðast- liðnu ári. Vikan 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.