Vikan - 22.06.1999, Blaðsíða 25
Tíu ráð til að gera daginn fullkominn!
Hentu vekjaraklukkunni. Ef þú
þarft á slíkri klukku að halda
bendir það til þess að þú fáir of
lítinn svefn. Áður en Edison fann
upp ljósaperuna svaf fólk oftast
tíu tíma nætursvefn en í dag meg-
um við teljast heppin ef við náum
sjö tímum samfleytt. Það er lík-
amanum nauðsynlegt að fá a.m.k.
átta tíma svefn. Ef þú neyðist til
að nota vekjaraklukku þá skaltu
ekki stóla á „snústakkann" til að
fá að sofa örlítið lengur heldur
skaltu frekar stilla vekjaraklukk-
una þannig að hún hringi hálftíma
seinna en venjulega og þá vaknar
þú endurnærð eftir samfelldan
svefn.
Gerðu teygjuæfingar. Áður en
þú ferð á fætur skaltu setjast ró-
lega upp í rúminu, færa þig að
rúmbríkinni og teygja á hrygg
þannig að höfuð þitt og handlegg-
ir hangi máttlausir í átt að gólfinu.
Ef þig verkjar í mjóbakið er gott
að leggjast á bakið í rúminu, láta
handleggina liggja beint út frá öxl-
um, draga hné að brjóstum og
sveigja síðan fætur til skiptist á
vinstri og hægri hlið án þess að
mjaðmir fylgi með. Þessi teygja
framkallar mikla vellíðunartilfinn-
ingu.
Stuð í sturtunni! Á meðan tært
íslenskt vatnið fossar niður eftir
bakinu á þér, stilltu þá vatnskran-
ann til skiptis á heitt og kalt vatn.
Þetta kemur hressilegri hreyfingu
á blóðrásina og morgunslenið er á
bak og burt.
Gefðu þér góðan tíma til þess
að njóta morgunverðar. Fyrsta
máltíð dagsins á að vera upp-
spretta orku sem á að endast langt
fram eftir degi. Ef þú ert búin að
fá leið á hefðbundnu morgun-
korni eða jógúrt, prófaðu þá að
setja hnetusmjör á ristað brauð til
tilbreytingar. Nýlegar rannsóknir
benda til þess að hnetusmjör
dragi úr kólesterólmyndun og við-
haldi HDL sem er „góða" kól-
esterólið.
Borðaðu heilsusamlegan auka-
bita eins og epli eða banana.
Hentu vekjara-
klukkunni.
Ef þú þarft á
slíkri klukku
að halda bend-
ir það til þess
að þú fáir of
lítinn svefn.
Reyndu að hafa hemil á sykur-
löngun því þó að sykur gefi orku
og kraft þá er það skammvinn
sæla sem endar með því að þú
verður slöpp og jafnvel syfjuð.
Settu þér raunsæ markmið sem
eru auðveld í framkvæmd. Skrif-
aðu hjá þér eitthvað sem hefur
verið að ónáða þig undanfarið en
slepptu því alveg að skrifa langa
lista. Hreinsaðu til í ruslaskúff-
unni, borgaðu einn reikning sem
er fallinn í gjalddaga eða skrifaðu
bréf sem þú varst búin að lofa að
gera í fyrra. Það mun koma þér á
óvart hversu vel þér líður á eftir.
Dekraðu við sjálfa þig. Kauptu
rósavönd í uppáhaldslitnum þín-
um; handa sjálfri þér. Það er talið
að blóm í nánasta umhverfi
manns minnki spennu, dragi úr
neikvæðri orku og auki á ánægju
og jákvæðni. Gefðu hinu enda-
lausa aðhaldi í matarræði frí í einn
dag, farðu á spennandi veitinga-
hús og pantaðu það sem þig virki-
lega langar í. Slepptu því bara að
heilsa upp á vigtina næstu tvo
daga. Það er enginn skaði skeður
með þessu.
Hækkaðu tónlistina þína í botn.
Rétta tónlistin getur aukið endor-
fínflæði, dregið úr sársauka og
komið þér í mikið stuð. Með hátt
stilltri tónlist getur þú látið gamm-
inn geysa og tekið villt dansspor á
stofugólfinu.
Slepptu sjónvarpinu í einn dag.
Samkvæmt rannsóknum hafa at-
hafnir sem ekki krefjast nokkurr-
ar hreyfingar eða einbeitingar,
eins og að horfa á sjónvarp, slæm
áhrif á lífsgleði fólks.
Farðu í gott bað. Heitt bað er
dásamleg leið til að ná góðri slök-
un og innri ró. Tilvalið er að setja 2
lavenderolíu út í baðvatnið þar g.
sem hún dregur úr spennu, pirr- $
ingi og höfuðverk. Þurrkið húðina “
vel á eftir, berið gott rakakrem á g
allan líkamann, farið í þægileg
náttföt og skríðið upp í rúm með i
góða bók. Ekki sakar að vera ný- c
búin að skipta á rúminu með rúm- «
fötum sem hafa hangið til þerris
úti á snúru allan daginn.
Vikan 25