Vikan


Vikan - 22.06.1999, Blaðsíða 29

Vikan - 22.06.1999, Blaðsíða 29
Við ákváðum að borða saman á hótelinu og ég stað- hæfi að það sé ekki til róm- antískari né fallegri staður í heiminum en Þingvellir á fögru haustkvöldi í þoku. Eftir matinn gengum við niður að vatninu og héld- umst í hendur eins og það væri eðlilegasti hlutur í heimi. Við kysstumst á smá- bátabryggjunni og snerum aftur upp á hótel til að taka okkur herbergi. Nóttin var yndisleg og sömuleiðis næsti dagur. Við eyddum mestum tíma uppi á herbergi en þess á milli reikuðum við um þennan fallega stað í sælu- vímu. Það kann að hljóma und- arlega í eyrum margra en ég leiddi aldrei hugann að manninum mínum og börn- unum. Ég gat ekki hugsað um annað en hann og hversu vel okkur leið sam- an. Mér þótti allt sem hann gerði og sagði aðlaðandi og gat ekki fengið nóg af hon- um. Hann er sá blíðasti og tillitssamasti maður sem ég hef kynnst um ævina. Á sunnudagskvöld héld- um við í bæinn aftur og ég keyrði hann út á flugvöll á mánudagsmorguninn. Ég grét alla leiðina heim og varð hvað eftir annað að keyra út í vegkantinn þegar grátköstin urðu of yfirþyrm- andi. Þegar maðurinn minn kom heim var ég enn að reyna að jafna mig. Fyrstu vikurnar var ég fyrtin og leiðinleg við hann en hann tók það á sig og bað mig af- sökunar á hversu lítið hann hefði sinnt mér og fjölskyld- unni. Hann lofaði bót og betrun og sagði að héðan í frá skyldi hann sjá til þess að vinnan hefði ekki algjöran forgang. Ég sagði honum að Lesandi segirfrá þetta væri ekki eingöngu honum að kenna heldur bættist líka við óánægja mín með aðgerðarleysið. Ég dreif mig síðan í nám í fagi sem ég hef alltaf haft áhuga á og fékk upp úr því ágæta vinnu. Börnin uxu úr grasi og Bretinn, vinur minn, varð ekki annað og meira en fjarlæg minning sem ég tók fram að ylja mér við af og til. Fyrir nokkrum árum missti ég svo manninn minn og þá vaknaði forvitni mín að vita hvað hefði orðið um manninn sem gaf mér svo mikið á sínum tíma. Ég ákvað að fara í ferðalag til Englands með vinkonu minni og nota tækifærið til að leita hann uppi. Ég mundi heimilisfangið og bað vinkonu mína að bíða á kaffihúsi í bænum meðan ég færi með leigubíl að húsinu sem var í útjaðri bæjarins. Ég hringdi bjöll- unni og kona á svipuðum aldri og ég kom til dyra. Ég spurði eftir manninum og í Ijós kom að hann bjó þarna enn. Ég fékk mikinn hjart- slátt og skalf öll meðan ég beið þess í dyrunum að hann kæmi fram. Þegar hann loks birtist létti mér mikið. Gamli neistinn var slokknaður. Hann var að vísu enn aðlaðandi og kurt- eis maður en engar ástríður kviknuðu. Hann þekkti mig strax, bauð mér inn og kynnti mig fyrir seinni konu sinni sem hafði komið til dyra. Við áttum jafnmargt sameiginlegt og áður og gekk eins vel að spjalla sam- an og forðum. í dag eru þessi hjón vinafólk mitt og ég og minn gamli elskhugi erum í skemmtilegu bréfa- sambandi hvort við annað. Minningin um helgina okkar er jafnbjört en það er eins og það hafi verið annar maður og önnur kona en við tvö sem þá gistu á hótel Val- höll." lesandi segir Steingeroi Steinarsdóttur sögu sína Vilt þú deila sögu þinni meö okkur? Er eitthvað sem hefur haft mikil áhrif á þig, jafnvel breytt lífi þínu? Þér er velkomiö að skrifa eða hringja til okkar. Við gætum fyllstu nafnleyndar. I leiniilislanj>iO cr: Vikan - „Lílsreynslusaga", Seljavt‘í>ur 2, 101 Kcykjarík, Netfang: vikan@írodi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.