Vikan


Vikan - 22.06.1999, Qupperneq 10

Vikan - 22.06.1999, Qupperneq 10
 b „Ég kann vel við mig í þjónustuhlutverk inu, að reyna að dekra við kúnnana." öllu tilheyrandi. Líf númer tvö er bóndi á Minni Borg í Grímsnesi með kýr, kindur, börn, símstöð og fleira. Þetta líf hófst 1972, sama ár og við hjónin giftum okkur. Ég segi oft í gríni að maðurinn minn hafi gifst mér til fjár, þá aðal- lega sauðfjár. Hann var bú- fræðingur og við bæði Reyk- víkingar en amma mín átti jörð sem við tóku á leigu. Á þessum árum var svolítið í tísku að fara upp í sveit eða út á land. Við vorum í Grímsnes- inu til ársins 1979 og þar eign- uðumst við þrjú börn. Síðan fórum við til Svíþjóðar og hóf- um þriðja lífið, námsmannalíf- ið. Þar dvöldum við til ársins 1983. Maðurinn minn vann og ég stundaði háskólanám. Fjórða lífið hófst þegar við fluttum aftur í sveitina en þar bjuggum við á árunum 1983- 1987. Þá var ég kennari á Ljósafossi og kenndi mínum eigin börnum. Var ekki erfitt að kenna þeim? Nei. Það var mjög þægilegt að vera kennari í sveitinni og hafa fáa nemendur í bekk. Maður þekkti þau svo vel. Auk þess eru það forréttindi að fá að vera svona mikið með börnunum sínum. Fimmta lífið er Reykjavík- urlíf á árunum 1987-1998. Ég var fimm ár í Rauðakross- húsinu og sex ár hjá Heimili og skóla. Og nú erum við farin að lifa sjötta lífinu. I Borgarnesið er ég komin til að vera og ætla að njóta þess. Mér finnst alveg frábært að búa hérna. Ég hugsa nú samt að ég geri eitthvað nýtt áður en ég fer á eftirlaun." Hvernig finnst þér að vera orðin sjoppueigandi? „Mér finnst það mjög skemmtilegt. Þetta er mikið samskiptastarf og fjölbreytt. Ég kann vel við mig í þjón- ustuhlutverkinu, að reyna að dekra við kúnnana. Hérna hittir maður alla vini og vandamenn því þeir koma alltaf við á leiðinni í gegnum Borgarnes. Stundum hefur maður tíma til að tala við þá, stundum ekki. Þetta er krefj- andi, ögrandi en mjög skemmtilegt. Unnur er nánast ómissandi í eldhúsinu og með stuttu milli- bili koma starfsmenn og þurfa að fá ráðleggingar hjá henni um hin ýmsu mál. í ljós kemur að Unnur eldar "mömmumat" í hádeginu og vörubflstjórarn- ir í nágrenninu flykkjast til hennar á mínútunni tólf. Þennan ágæta dag ætlar hún að bjóða upp á bjúgu og upp- stúf. Kartöflurnar eru komnar í pott og Unnur tilbúin að halda áfram að svara spurn- ingum. Kyssast í vinnunni Saknarðu einhvers úr Reykjavík? „Nei. Ég sakna að minnsta kosti ekki umferðarinnar. Ég er svo fegin að vera laus við hana. Það er helst að ég sakni fjölskyldu minnar, barna, ætt- ingja og vina. Maður hittir þá síður af því að vinnutíminn hjá okkur er lengri en við höf- um vanist á undanförnum árum. Hérna áður átti maður oft frí á kvöldin yfir sumartímann og gat ræktað vinina en hér er það erfiðara. Mágur minn er með okkur í rekstrinum þannig að við getum þó aðeins tekið okkur frí. Dóttir okkar, sem er tuttugu og þriggja ára, er að líka flytja til okkar og ætlar að hefja nám á Bifröst næsta vetur, þannig að við fáum aftur heimasætu í húsið. Okkur er mjög vel tekið hérna. Við höfum kynnst mörgum og Borgnesingar eru mjög almennilegir í okkar garð. Auðvitað er það líka undir manni sjálfum komið, hvað maður er tilbúinn að gefa af sjálfum sér. Ég finn að andinn á lands- byggðinni er svolítið að fara suður því þar sé allt betra. Ég held að fólk átti sig ekki á því þegar rætt er um kostnað, að það er svo margt sem er ódýr- ara á landsbyggðinni. Það er miklu minna sem fer t.d. í rekstur á bfl. Auk þess er oft hægt að leysa mörg mál á ein- faldan hátt í minni bæjarfélög- um. Fólk bjargar gjarnan mál- unum hvert fyrir annað. í borginni er hægt að vera mjög einmana ef það eru bara mamma, pabbi, börn og bfll. Hér er líka frábært menning- arlíf, fín sundlaug, góð heilsu- gæsla og svo margt annað sem er ómetanlegt. Fylgistu með skólamálum í Borgarnesi? „Já. Skólinn er ágætur. Hérna er framsækið kennara- lið með þróunarstarf í gangi, góð lestrarkennsla og stuðn- ingur við börn og mjög öflugt félagslíf. Ég heyri ekkert ann- að en gott af skólanum. Hafið þið hjónin einhvern tíma fyrir áhugamál? „Já. Já. Við kyssumst mikið. Það er hægt að sinna því þegar við erum að vinna svona mik- ið saman. Okkur finnst mjög skemmtilegt að vinna saman. Við höfum áhuga á golfi og reynum að fara saman á golf- völlinn. Við höfum líka gaman af því að ferðast, förum í göngur á hverju sumri með sama hópnum og í sumarbú- stað. Okkur langar að læra dans. Ég ligg í bókum og ætt- fræði og hann horfir á fótbolta og í framtíðinni þeysist hann líklega um á nýja mótorhjól- inu sem hann var að festa kaup á. Er gamall draumur að ræt- ast hjá honum? „Já, ég hugsa það. Hann er svo hógvær að hann hefur ekki talað hátt um þetta. Börnin vissu ekkert af því og voru alveg undrandi þegar pabbi birtist á mótorhjóli. Ég er ekki ennþá búin að prófa að fara með honum á rúntinn, en minn tími kemur." Unnur hefur svarað sam- viskusamlega öllum þeim spurningum sem fyrir hana voru lagðar en er farin að ókyrrast. Karlarnir hennar vilja matinn á réttum tíma og því rétt að fara að huga að uppstúfinu. Þessi orkumikla kona er ekki lengi að töfra fram ekta íslenskan mat og á slaginu tólf mæta fastakúnn- arnir, setjast og bíða þess að Unnur beri fram matinn. Unnur hugsar greinilega vel um karlana í Borgarnesi enda er hún að eigin sögn ákaflega brjóstgóð kona! Eg segi oft í gríni að maðurinn minn hafi gifst mér til fjár, aðallega sauðfjár.“ 10 Vikan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.