Vikan


Vikan - 22.06.1999, Page 45

Vikan - 22.06.1999, Page 45
Eftir Gloriu Murphy. Þórunn Stefánsdóttir þýddi. birtu hér inn. Mér finnst þeir ljótir. Og það kemur hvort sem er lítil sem engin birta inn um þá. Þú ræður. Hann stakk blokkinni í vasann. Eitthvað fleira? Það þarf að hljóðeinangra þetta herbergi. Veggirnir eru svo þykkir að þungarokkshljómsveit gæti spiiað hér á fullu án þess að nágrannarnir heyrðu nokkurn skapaðan hlut. Fínt. En upp á efri hæð- ina? Hann leit undrandi á hana og skildi ekki hvað hún átti við. Heldur þú að hávaðinn heyrist upp á efri hæðina? Skiptir það einhverju máli? Þetta verður hvort sem er þinn eigin hávaði, þannig að.. Já, ég veit það, en ég vil samt láta hljóðeinangra allt saman. Er það ekki hægt? Vissulega er það hægt. Eg get einangrað loftin, þéttari hurð. Sem er hægt að læsa báð- um megin frá, sagði hún. Hann ætlaði að fara að segja að það væri ekki nauð- synlegt en hætti við það þeg- ar hann sá svipinn á andliti hennar. Þess í stað sagði hann: Eins og þú vilt. Hún leit á hann og spurði: Hvernig var stelpan? Hvaða stelpa? Sú sem hélt veisluna. Sagði ég að það hefði ver- ið stelpa? Sagðir þú það ekki? Kannski ég hafi bara verið viss um að það hafi verið stelpa. Segðu mér frá henni. Það er nú ekki mikið að segja, hún var bara stelpa sem var með mér í skóla. Eg man ekki einu sinni hvað hún heitir. Af hverju hefur þú svona mikinn áhuga á henni? Mig langar að vita sem mest um fyrri íbúa hússins, sagði hún. Ef þú ert að velta því fyrir þér hvort hér hafi ein- hvern tíma búið axarmorðingi get- ur þú verið alveg róleg. Ef ég man rétt var stelpan feimin og ófram- færin. Það var ekkert hættulegt við hana. Um leið og Viktoría kom inn í svefnherbergið tók hún fram bók- ina sem hún geymdi í nátt- borðsskúffunni. Hún opnaði hana og leitaði að and- liti Sam Regis. Rusty hafði boðist til þess að hafa samband við hann. Fínt, þá slapp hún við að gera það sjálf. Þetta gekk framar vonum. Hún tók brúð- una úr skápnum og þrýsti henni að sér meðan hún hugsaði um Sam Regis. Hún mundi vel eftir honum, sér- staklega ruddalegum hlátr- inum. Hann hélt meira að segja áfram að hlæja eftir að þú varst farin að gráta Rósalía, sagði hún við brúð- una. Rusty var í vefnaðarvöru- deildinni þegar hann kom auga á rauðgullið hárið. Brosandi gekk hann að henni og klappaði henni á öxlina. Hæ, sagði hann glað- lega. Svo við hittumst þá aft- ur hér. Hann leit á inn- kaupavaginn hennar. Þú vildir kannski vera svo væn að aka varlega? Kvörtunardeildin er inni á ganginum til vinstri. Hún smeygði vagninum framhjá honum. Bíddu aðeins! Hann greip í vaginn. Ég þarf á smá hjálp að halda, sagði hann og brosti vandræðalega. Þú ert greini- lega með meirapróf í inn- kaupum og mér datt í hug hvort þú gætir hjálpað mér. Með hvað? Ég er að leita að glugga- tjaldaefni, útskýrði hann. Og þú getur það ekki hjálparlaust? Hann andvarpaði. Ég hef aldrei keypt gardínur fyrr, þannig að.. Það er nú ekki erfitt. Þú lítur í kringum þig, sérð eitt- hvað sem þér þykir fallegt og kaupir það. Hann greip efnisstranga og horfði hjálparvana á hana. Hvað með þetta? Hræðilegt. Gott og vel, hvar eiga gardínurnar að vera? Ertu búin að koma bóka- hillunum saman? spurði Rustý þegar hann stuttu Vikan 45

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.