Vikan - 22.06.1999, Síða 49
ERTU TILFINNINGALEGA?
HVAÐ SEGJA STIGIN ÞÉR?
Leggðu saman svörin og
þá sérðu hversu oft þú
hefur brugðist við eins og
fullorðinn einstaklingur,
táningur eða barn.
1. a fullorðinn b táningur c barn
2. a fullorðinn b táningur c barn
3. a barn b táningur c fullorðinn
4. a barn b fullorðinn c táningur
5. a fullorðinn b barn c táningur
6. a barn b fullorðinn c táningur
7. a fullorðinn b barn c táningur
8. a barn b táningur c fullorðinn
9. a fullorðinn b táningur c barn
10. a táningur b barn c fullorðinn
11. a barn b fullorðinn c táningur
12. a fullorðinn b barn c táningur
13. a barn b táningur c fullorðinn
14. a barn b táningur c fullorðinn
15. a táningur b fullorðinn c barn
16. a barn b táningur c fullorðinn
Vikan 49
BARN:
Kostir: Þú ert forvitin um lífið og tilveruna og alltaf til í að
prófa eitthvað nýtt. Fólk sækist eftir félagsskap þínum og all-
ar veislur eru óneitanlega skemmtilegri þar sem þú ert gest-
ur. Þú ert opinn persónuleiki og getur aldrei verið lengi í
vondu skapi.
Gallar: Þú framkvæmir gjarnan hlutina umhugsunarlaust,
ert óþolinmóð og gætir fjármálanna ekki nógu vel. Þú kvartar
gjarnan yfir því að allir skipti sér af því sem þú gerir en vilt
samt að aðrir hugsi fyrir þig. Þú átt það til að vera sjálfselsk
og ert stundum ekki nógu góður vinur vina þinna.
Til bðta: Settu þér það takmark að gefa vinum þínum eitt-
hvað af þér og tíma þínum á hverjum degi án þess að ætlast
til einhvers í staðinn. Þannig getur þú vanið þig af sjálfselsk-
unni og lært að njóta þess að gleðja aðra.
TÁNINGUR
Kostir: Þú ert góðhjörtuð, híý og trygglynd, verð málstað
vina þinna fram í rauðan dauðann og líður best þegar þú ert
umkringd vinum þínum. Þú ert greind og for-
vitin og þorir að taka áhættu. Vinum þínum
finnst betra að vera á þínu bandi því þú get-
ur átt það til að vera óþægilega kaldhæðin.
Gallar: Þú ert oft uppreisnargjörn og kæru-
laus og þér hættir til þess að sjá tilveruna í
svörtu og hvítu. Þú ert oft óörugg en felur
það með öruggri framkomu. Þér hættir
einnig til að láta vini þína hafa of mikil áhrif
á skoðanir þínar. Þegar tveir deila gætir þú
þess að halda með þeim sem er líklegur til
að hafa vinninginn.
Til bóta: Þú þarft að setja þér metnaðar-
fyllri framtíðarmarkmið og venja þig á að
treysta eigin dómgreind í stað þess að láta
stjórnast af skoðunum annarra.
FULLORÐIN
Kostir: Þú ert sjálfsörugg og veist hvert þú
stefnir, hvað þú vilt og hvernig best er að ná
takmarkinu. Þú ert metnaðarfull í starfi og
góður starfsfélagi. Þú ert heiðarleg, bæði
gagnvart sjálfri þér og öðrum.
Gallar: Þér hættir til að taka hlutina of alvarlega, vinna of
mikið, taka á þig of mikla ábyrgð og gleyma eigin þörfum. Þú
ættir að skemmta þér oftar og njóta augnabliksins í stað
þess að hugsa stöðugt um hvað þú ættir að vera að gera.
Til bóta: Þegar þú ert stressuð og finnst þú alltaf þurfa að
gera allt þá skaltu spyrja sjálfa þig hvort það sé í raun og
veru það sem þú vilt. Þegar sá dagur kemur að þú svarar
þeirri spurningu neitandi skaltu taka þig taki og setja þér það
takmark að læra að deila ábyrgðinni með öðrum.
c) Þú hlakkar til þegar allt
kemst í gamla horfið en
leggur stolt þitt í að vera
góður gestgjafi.
Þú ert í fríi á sólar-
strönd með vinum þín-
um og einn úr hópnum
stingur upp á því að þið farið
nakin f sjóinn. Hvernig bregst
þú við?
a) Þú sprettur á fætur og seg-
ir að sá síðasti sem fer í
sjóinn sé skræfa.
b) Þú ert til ef hinir eru það.
c) Þú segir að þú kunnir nú
betur við að vera í sundföt-
unum.
Vinkona þfn segir þár
leyndarmál og biður
þig að segja það eng-
um. Hvað gerir þú?
a) Þú trúir nokkrum vinum fyr-
ir leyndarmálinu en biður
þá að segja engum að það
komi frá þér.
b) Þú segir frá aðeins ef það
kemursérillafyrirein-
hvern að vita það ekki.
c) Reynir þitt besta til að
þegja en segir nokkrum
manneskjum leyndarmálið
- alveg óvart.
^Vinkona þín segir þár
að vinur hennar sé
spenntur fyrir þér og
langi til þess að hitta þig.
Hvernig brest þú við?
a) Spyrð hvernær hann vilji
hitta þig.
b) Spyrð af hverju hann sé
ennþá laus og liðugur.
c) Spyrð við hvað hann starfi.