Vikan


Vikan - 22.06.1999, Side 59

Vikan - 22.06.1999, Side 59
hann er manna síðastur að smitast. Hann á þó til að „detta í" dularfulla sjúkdóma sem koma og fara án hald- bærra skýringa frá sérfræð- ingum. Þetta gæti ef til vill tengst upphafi hans og sam- skiptum við Hydru, snákinn eitraða. Veikleiki Krabbans er hins vegar maginn og maga- svæðið sem hann þarf að gæta vel að láta enga ólyfjan í, þá er voðinn vís. Heimili, lístir og menning Krabbinn er sérlega heima- kær og unir sér best í eigin ranni. Þar leggur hann sig fram við að skapa sér og sín- um fallegan og þægilegan íverustað. Húsið er hans skel og staður þar sem hann eyðir lengstum tíma sínum. Honum er því kappsmál að það veiti skjól í öllum skilningi, gleðji augað og falli vel að líkamleg- um þörfum. íbúð Krabbans er nútímaleg en samt hefðbund- in í þeim skilningi að hann nýtir allt gamalt og gott til að fullkomna aðsetur sitt. Krabb- inn er safnari og fágaður sem slíkur. Húsgögnin eru glæsi- leg og sem dæmi er „danska eggið" einn af uppáhalds stól- um Krabbans. Þar getur hann hreiðrað um sig með góða bók og nánast tíst af ánægju og vellíðan. Hann getur líka setið og horft á listaverk sem hann hefur krækt í eftir bestu listamenn þjóðarinnar, hlust- að á ballöður og þjóðlög sem eru hans yndi á meðan hann spáir í hvað hann ætlar að hafa f kvöldmatinn því Krabb- inn er framúrskarandi kokkur. Foreldrar og börn Að eiga Krabba að foreldri er hverju barni mikil gleði. Krabbinn er að eðlisfari "móð- urlegur" og honum er annt um hag barna sinna, að þau Krabbinn í essinu sínu og það smitar út frá sér, sérstaklega á hitt kynið svo hann má eiga von á blómstrandi ástarævin- týrum. Þetta á jafnt við ein- hleypa sem gifta Krabba en þar sem Krabbinn er trúr sín- um þýðir lítið að reyna við lof- aðan Krabba. Gleði Krabbans af að vera til á þessu síðasta ári aldarinnar gerir hann op- inn og blátt áfram í tali og gerðum. Það skilar sér rétta boðleið svo menn taka mark á velvilja hans og heiðarleika og fara eftir ráðleggingum hans án þvermóðsku. Villt- ustu draumar Krabbans munu einnig rætast á þessu ári og andleg sem líkamleg heilsa mun blómstra. Með haustinu rísa ákveðin tákn varfærni umhverfis Krabbann og hon- um væri hollt að lesa alla samninga ofan í kjölinn áður en skrifað er undir. Jólin og áramótin verða svo krydduð angan ástarinnar og ilmi nýrra tíma. það er mesti misskilningur, hann rásar bara til eins og sannur krabbi. Sumar, haust og vetur 1999 Útlit er fyrir að Krabbinn lendi í miðju fjölskyldudeilna bráðlega eða sé rétt sloppinn úr þeirri rimmu Sú þraut hefur eða mun leysast af sjálfu sér ef Krabbinn heldur skelinni þétt að sér og lætur þolin- mæðina stjórna gerðum sín- um. Á þann hátt nær hann bestum árangri, að maður tali nú ekki um ef málið snýst um gamla efnið, ástina. Sá grunnur að vísa til þolinmæði og íhygli í gerðum sinum veit á gott. Árið verður Krabban- um gefandi og sigursælt. í mistri framtíðar er Krabbinn mikið á ferðinni, annað tveggja að flytja og endurnýja húsnæði sitt eða að þeytast milli landa í viðskipta og skemmtireisum. Skyldur Krabbans á vinnustað aukast og árverkni hans og ábyrgð skilar sér í bættri afkomu. Þessi nákvæmni hans vekur eftirtekt og hann hækkar í tign. Nú í júní og fram í júlí er I njóti æskunnar sem slíkrar og fái allt það besta sem hún býður upp á. Honum er í mun að börnin séu vel klædd og vel alin til munns og handa. En þessi umvefjandi umhyggja á það til að snúast í andhverfu sína. Krabbinn á það til að ofvernda sína nán- ustu og neita að sætta sig við að börn hans vaxi úr grasi og velji eigið lífsmynstur. Þetta getur kostað mikla erfiðleika í samskiptum Krabbans við börn sín, þrætur, þref og hurðarskelli. Sem barn er Krabbinn vandmeðfarinn per- sónuleiki, hann er sérlega viðkvæmur og því er ekki sama hvernig að honum er farið. Hnjóðsyrði og skammir geta gert hann lokaðan og fráhverfan umhverfinu en mýkt og ígrunduð framsetning orða gerir hann opinn, glaðan og skemmtilegan krakka sem hefur yndi af herberginu sínu og grúskar þar í skemmtileg- um hlutum. Þar er litli Krabb- inn vísindamaður, fornleifa- fræðingur eða verðandi upp- finningamaður. Ytri áhrif Þar sem krabbinn er við- kvæm skepna þótt hann virð- ist harður að sjá, á fólk í krabbamerkinu það til að rjúka í fýlu af minnsta tilefni. Krabbinn getur þá orðið með þeim leiðinlegri í um- gengni, skammast, rifist og nöldrað um allt og ekkert, hengt sig á kenn- ingar og verið "pain in the ass" eins og sagt er. Þessi hlið Krabbans er honum til vansa, enda lætur hann sem minnst á því bera út á við hversu mislyndur hann getur verið. Á ytra borði virkar Krabbinn ósjálfstæður en Samantekt Þessi samantekt er fyrir alla þá sem heillast af Krabban- um og sækjast eftir að skríða undir skelina hjá honum. Við lestur samantektarinnar geta þeir ef til vill áttað sig betur á eðli Krabbans og duttlungum en ekki endilega einstaklingn- um sjálfum, þar koma til þætt- ir eins og rísandi merki, hús, miðhiminn, fæðingarstaður, uppeldi og mótun. Ég hef stiklað á stóru um Krabbann og margt er ósagt en grunn- urinn er þó skýr og speglast í ný og nið mánans. Vikan 59 Krabbinn er munúðarfullur á öllum sviðum og léttur í lundu.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.