Vikan - 22.06.1999, Síða 60
TEXTI: SÆVAR HREIÐARSSON
Meryl Streep hefur lokiö viö sína nýjustu
mynd, sem kallast 50 Violins, en hún verður
frumsýnd í Bandaríkjunum innan skamms.
Hún fjallar um kennslukonu sem leggur
mikið á sig til aö kenna krökkum úr skugga-
hverfum Harlem á fiðlu. Upphaflega var
Madonna ráöin i aðalhlutverkið og hún var
farin að æfa sig á fiðluna þegar babb kom í
bátinn. Henni lynti ekki við leikstjóra mynd-
arinnar, Wes Craven, og Streep var fengin til
að taka við hlutverkinu. Þegar myndin var
prufukeyrð fyrir heppna áhorfendur vakti
hún sterk viðbrögð í salnum. "í miðri mynd
byrjuðu allt í einu allir áhorfendurnir að
grenja. Þetta hef ég aldrei séð áður," segir
einn bíógesta. Þetta er því sannkölluð vasa-
klútamynd en Craven er þekktari fyrir hryll-
ingsmyndir sínar, svo sem Scream og A
Nightmare on Elm Street. Angela Bassett, Ai-
dan Quinn, Jane Leeves og Gloria Estefan
leika einnig í myndinni auk margra þekktra
fiðlusnillinga. Þess má geta að enn hefur
ekki verið ákveðið endanlegt nafn á mynd-
ina en framleiðendurnir eru að hugsa um að
kalla hanaThe Music of my Heart.
Leikarinn Kris Kristofferson
gekkst undir fjögurra tíma hjartaað-
gerð fyrir skömmu eftir að hafa
þjáðst af langvarandi brjóstverkjum.
Kunnugir segja að sukk og subbu-
legt líferni hafi farið illa með mikil-
vægasta líffæri kappans. Aðgerðin
var framkvæmd á háskólasjúkra-
húsinu í San Francisco og
Kristofferson hafði elginkonu sína,
Lisu, hjá sér til halds og trausts.
"Ég er virkilega hræddur. Ég á fimm
börn sem ég þarf að sjá fyrir og mig
langar að sjá þau vaxa úr grasi,"
k sagði Kristofferson við náinn
H vin sinn skömmu áður en
■ hann lagðist undir hnífinn.
H Talsmaður leikarans segir að
aðgeröin hafi gengið vel.
Hann er nú að jafna sig á j
^ heimili sínu í Maui á Hawaii.
Látúnsbarkinn Chris Isaak veit hvernig á að heilla stúlkurnar.
Fyrir skömmu var tekin upp sjónvarpsþáttur til heiðurs Johnny
Cash á skemmtistaðnum China Club í New York. Fjörið hélt siöan
áfram fram eftir nóttu og Isaak var manna vinsælastur á dans-
gólfinu. Hann dansaði viö allar dömurnar og síðan, þegar stúlk-
urnar tóku sér hlé til að ná andanum, stökk hann upp á sviðið og
söng "MysteryTrain" og "Blueberry Hill" við mikinn fögnuð.
Gamla brýnið Jon Voight fékk sér einnig snúning á dansgólfinu
og Kevin Bacon fylgdist með af mikilli aðdáun. Isaak er þekktur
fyrir að syngja um rómantík og ástarsorgir en hann vill ekkert
gefa upp um eigið ástarlíf. "Ef stúlkurnar vilja vita eitthvað um
mitt ástarlíf verða þær að sofa hjá mér; öðruvísi komast þær ekki
að neinu," sagöi söngvarinn i nýlegu viötali.