Vikan - 27.07.1999, Blaðsíða 24
Texti: Margrét V. Helgadóttir
Myndir: Baldur Bragason og úr einkasafni
Heimsókn í stóra r
Aðdáendur bókanna um Linu Langsokk muna eflaust eftir Sjónarhóli, húsinu hennar Línu. Blaðamaður Vikunnar brá sér í
Skerjafjörðinn einn eftirmiðdaginn og fann hús sem lítur út aiveg eins og Sjónarhóll. En þar var hvorki að finna Línu Langsokk
né herra Níels. Hins vegar fann hann hjón sem búa ásamt þremur börnum sínum í húsinu og flesta daga njóta þau nærveru
annarra þrjátíu barna. Þau reka barnaheimilið Skerjakot á fyrstu hæðinni í fallega gula húsinu við Bauganes númer þrettán.
jónin Díana Sigurðar-
dóttir og Kristinn Ingi
Jónsson hljóta að búa
yfir einstakri þolimæði því þau
hafa búið í sama húsi og litli leik-
skólinn í rúmlega 10 ár. Starfsemi
leikskólans fer fram á fyrstu hæð-
inni en heimili þeirra er á annarri
og þriðju hæð hússins. Nú er svo
komið að þau eru farin að hugsa
sér til hreyfings og ætla sér að búa
annars staðar og eftirláta leikskól-
anum heimilið sitt.
Á fyrstu hæðinni var aðeins
þögnina að finna því öll börnin
eru í sumarfríi. Listaverk og leik-
föng minntu þó óneitanlega á
hvers konar starfsemi færi þar
fram. Á annarri hæð hússins er
hins vegar að finna fallegt heimili.
Díana tók hlýlega á móti
blaðamanni. Hún er greinilega
hugsjónakona og börnin eru
henni afar hugleikin.
Hvernig stóð á því að þau hjón-
in fóru að reka leikskóla inni á
heimilinu sínu?
„Ég hef unnið með börnum allt
frá því ég var átján ára og þekki
því ekkert annað starf. Ég held að
ég gæti ekki unnið neitt annað
starf. Ég lauk námi frá fóstruskól-
anum árið 1985 og starfaði í nokk-
ur ár sem leikskólakennari. Mig
langaði að stofna leikskóla og við
fórum að leita að hentugu hús-
næði fyrir siíka starfsemi. Söfnuð-
ur Aðventista átti húsið og hér
var rekinn skóli. Pegar við kom-
um að skoða húsið og ég sá öll
skólaborðin varð ég alveg heilluð.
Ég sá strax fyrir mér að í þessu
húsi gæti ég rekið leikskóla. Húsið
ieit vægast sagt illa út og lóðin
hérna í kring voru uppgjafa kart-
öflugarðar og illgresi. Vinir og
kunningjar vöruðu okkur við
kaupunum og fólki fannst þetta
fráleit hugmynd. Við vorum hins
vegar alltaf harðákveðin í að vilja
þetta hús.
Mig langaði ekki til að vera
dagmamma. Mér finnst mikill
munur á því að vera dagmamma
og reka leikskóla. Ég hefði
kannski betur byrjað sem slík því
það fór mikil vinna í að útvega
leyfin til að fá að stofna leikskóia
auk þess sem við þurftum að
greiða alls kyns gjöld af starfsem-
inni. Á endanum tókst þetta hjá
okkur og við opnuðum Skerjakot.
Ég var leikskólastjóri og Kristinn
þurfti að fara á sjóinn til að fjár-
magna framkvæmdirnar" segir
Díana og hlær.
Tölvuforrit í þróun
„Við þurftum að sanna okkur
eins og aðrir sem eru að hefja fyr-
irtækjarekstur. Fólk notaði
Skerjakot svolítið sem biðstöð
áður en það fékk leikskólapláss
hjá borginni. í dag er svo komið
að stór hópur foreldra velur
Skerjakot sem leikskóla fyrir
börnin sín. Ég neita hiklaust að
taka börn inn á biðlista sem eru
líka á biðlista hjá borginni. Til
okkar leita það margir sem vilja
eingöngu Skerjakot að ég get ekki
verið að nota plássin sem bið-
stöð.“
Á tímabili vann Kristinn heil-
mikið hérna með mér. Hann var
kokkur og sá um öll matarinn-
kaup auk þess sem hann sá um
launamál starfsmanna. Núna er
starfar hann hjá Tölvumyndum.11
Leikskólinn Skerjakot er fram-
arlega í tölvumálum og Kristinn
er greinilega einn af mörgum
tölvugrúskurum. Mikil vinna hef-
ur verið lögð í heimasíðu leikskól-
ans. Hún er ákaflega frumleg og
þar má finna málverkasýningu
allra barna á leikskólanum auk
mynda og upplýsinga um lista-
mennina.
í ljós kemur að þau Díana og
Kristinn eru frumkvöðlar í margs
konar skilningi. Þau hafa þróað
ákveðið tölvuforrit fyrir leikskóla
sem þau kalla „Leikskóli til fram-
tíðar.“ Forritið er ýtarlegt upplýs-
inga- og fagforrit sem nýtist við
allan leikskólarekstur. Mennta-
málaráðuneytinu leist vel á þetta
þróunarstarf hjónanna og þau
hafa tvisvar sinnum fengið styrk
frá því til verkefnisins. Díana og
Kristinn leituðu samstarfs við
Tölvumyndir við forritun og þjón-
ustu og tókst með þeim gott sam-
starf sem tryggir áframhaldandi
þróun á verkefninu.
Hvernig gengur að kynna og
„Ég sá hús í blaði sem
var málað með þessum
fallega gula lit og þá
ákvað ég að mála húsið
í sama lit. Það eru
margir sem kalla húsið
Sjónarhól og þegar við
héldum nafnasam-
keppni fyrir leikskólann
stungu nokkrir upp á
því heiti.“
selja forritð?
„Pað hefur gengið mjög vel.
Við lítum svo á að þetta sé mikil
viðurkenning á okkar starfi.
Tölvunefnd er búin að viður-
kenna forritið sem er mjög já-
kvætt því þeir eru strangir varð-
andi allar persónuupplýsingar.
Með forritinu er líka verið að
koma í veg fyrir að alls kyns upp-
lýsingar liggi hér og þar. Allar
upplýsingar um barnið eru á ein-
um stað og einn aðili sem hefur
aðgang að þeim.
Við erum farin að kynna forrit-
ið fyrir leikskólastjórum og sveita-
félögum og mér finnst fólk vera
jákvætt gagnvart því.“
Hinn mikli áhugi Díönu á vel-
ferð barna er aðdáunarverður.
Mér finnst leikskólar oft van-
metnir og það mikla starf sem þar
fer fram. Á leikskólum læra börn-
in undirstöðuatriðin í svo mörgu.
Þau læra almenn félagsleg sam-
skipti, að taka tillit og virða skoð-
anir annarra o.s. frv. auk þess að
tileinka sér rétt vinnubrögð við
ýmis verkefni sem fyrir þau eru
lögð.
Mér finnst að öll börn eigi rétt
á að komast á leikskóla, ekki
endilega allan daginn, bara að fá
tækifæri til að kynnast starfinu
sem fram fer á leikskólanum.
Það er mikið rætt um aga í
þjóðfélaginu og margir líta á hann
sem eitthvað neikvætt. Börnin
þurfa aga. Þau þurfa að kynnast
honum strax því hvað gerist þegar
„Ég neita hiklaust að taka börn á biðlista sem eru
lika á biðlista hjá borginni. Til okkar leita það margir
sem vilja eingöngu senda börnin á Skerjakot að ég
get ekki verið að nota plássin sem biðstöð.“
24 Vikan