Vikan - 27.07.1999, Blaðsíða 32
Heimatil- m ' •
búnagjöfin
stendur alltaf
fyrir sínu. Fyrir þá J
sem eiga auövelt
með að nota nál og
tvinna er upplagt að sauma út eitthvað með kross-
saum eða jafnvel búa til bútateppi. Prjónakonur hafa
alla tíð getað gefið fallegar gjafir og því er um að
gera fyrir handlagna að nota hugmyndaflugið. Fal-
legustu gjafirnar eru ekki alltaf til í búðunum.
Klassísk tónlist hefur róandi áhrif á marga og þar eru börnin
engin undantekning.Til er mjög skemmtileg útgáfa af klass-
ískum tónverkum, bítlatónlist og sígildum ástar-
lögum í útsetningu sem
hljómar eins og spilað
sé á spiladós. Sagan á
bak við þessa sérstöku
lagaútsetningu er sú að
tónlistarmaður nokkur
átti lítið barn sem var
fremur óvært. Hann tók
upp á því að spila klassísk
lög á píanó til að reyna að
róa barnið en ekkert gekk.
Þegar hann fór að spila lög-
in á háu nótunum og þá ró-
aðist það. Tónlistarmaðurinn
var ekki lengi að taka við sér.
Hann útsetti nokkur lög í
spiladósarstíl og fékk heila
sinfóníuhljómsveit til að spila
lögin og lét hljóðrita þau. Þar
með var hann búinn að finna leið til að róa barnið sitt og í
framhaldi af því voru fleiri verk unnin á sama hátt og þúsundir
ungra barna hafa notið góðs af.
Tónlistin er bæði til á hljóðsnældum og geisladiskum. Hún fæst
í versluninni Þumalínu og fleiri barnavöruverslunum og
kostar 1000-1300 kr
í gegnum tíðina ^ ~
hafa barnastólar verið r
til í mörgum stærðum og
gerðum. ,,Ömmustólar“ njóta
mikilla vinsælda í dag. Þessi stóll er bólstr-
aður og því fer vel um litla krílið. Hægt er að stilla bakið á stólnum. Stólinn getur því verið
flatur og barnið legið út af og svo er hægt að stilla bakið þannig að barnið situr nánast upp-
rétt. Það er góð regla að festa börnin alltaf niður í stólana til að forðast slys þegar þau byrja
að brölta. Þessi stóll er úr Ólavíu og Óliver og kostar 5890 kr.
Sæti bangsinn sem fær að sitja í stólnum er úr sömu verslun og
er reyndar líka spiladós. Bangsinn kostar 3450 kr.
Myndarammar
r—ilB gegna mikilvægu
liH hlutverki i lífi
■ foreldraný-
■ fæddrabarna.
Öllum foreldr-
um finnst
barnið sitt
vera það
fallegasta í
heiminum og því ekki að leyfa
þeim að monta sig? Mynd-
arammarnir eru úr verslun
Hans Petersen i Austurveri og
kosta 1230-1825 kr.
Texti: Margrét V. Helgadóttir
Myndir: Hreinn Hreinsson
Það er gamall og góður
siður að færa nýfæddu
barni gjöf. Margir kaupa
falleg föt á krílið en svo
eru aðrir sem sjá stafla af
barnafötum fyrir sér og
vilja gefa barninu eitthvað
annað en fatnað. í barna-
vöruverslunum má finna
mikið úrval af fallegum og
nytsamlegum barnavörum,
Það má líka finna fallega
sængurgjöf í bókaverslun-
um, hjá úrsmiðum og í
blómabúðum. Ekki má
heldur gleyma heimatil-
búnu sængurgjöfunum;
þær eru einstakar.