Vikan - 27.07.1999, Page 33
Myndaalbúm eru nauðsynleg á
heimili nýfædda barnsins. Þau eru til í öllum
stærðum og gerðum en margir vilja eiga sér-
stök barnaalbúm. í verslunum Hans Petersen er
mikið úrval myndaalbúma og kosta þau allt frá 590 kr.
Albúmin á myndinni eru sérstök að því leyti að myndum er
smellt á milli harðspjalda og hægt er að skrifa texta með.
Mun færri myndir komast af
þeim sökum íslíktalbúm.
Opna myndaalbúmið
kostar 2075 kr. en
myndaalbúmið með
bangsamyndinni kost-
ar 1495 kr.
<>C
Það er alveg ótrúlega mikill
farangur sem fylgir litlu
barni. Því yngra sem
það er, þeim mun
meiri! Skiptitöskur eru
afskaplega þægilegar í
meðförum og þær rúma
allt sem þarf að taka
með sér í heimsóknir.
Að sögn starfsmanna í
barnavöruverslunum eru tískusveiflur í
töskunum. Núna eru vinsælustu tösk-
urnar í dökkum litum svo sem dökkblá-
um, vínrauðum og dökkgrænum. Margir
kaupa sér skiptitösku i stíl við nýja barnavagn-
^ inn en aðrir notast við eldri vagna og þá þýðir ekkert að hugsa um slíkt.
Þessar skiptitöskur eru úr versluninni Ólavíu og Óliver.
rtT Græna taskan kostar 3850 kr.
Æ ^ Bláköflótta taskan kostar 4950 kr.
M 'p-
* I
Fallegt sæng-
urver er sígild gjöf.
Sængurverin eru til í mörgum lit-
um og mynstrum og þau eru auðvitað líka til í
hvítu. Margir vilja halda í þá hefð að setja
hvítt utan um sæng nýfæddra barna. Börnin
eru þó ekki orðin gömul þegar þeim finnst
áhugavert að skoða skemmtilega mynd-
skreytta sæng.
Sængurverið á myndinni fæst í versluninni
Ólavíu og Óliver í Glæsibæ
og kostar 1960 kr. I versluninni er líka til
himnasæng og bólstraður stuðkantur í barna-
rúmið í sama mynstri og sæng-
urfötin.
4
'r”—'-
Tréleikföng
eru loksins orð-
in áberandi eftir langt hlé.
Þau þóttu fremur hallærisleg
þegar plastleikföngin komu
fyrst á markað. Tréleikföng eru
endingarbetri í flestum tilfellum,
auk þess minna þau líka á umhverf-
ið og eru hlýlegri.
Heimaprjónað ullarteppi er gott undir
litla ungann þegar hann reynir að
teygja sig eftir leikföngunum. Þessi teg-
und af leikgrind er mjög góð að því leyti
að hún er stöðug. Þegar smáir fætur
fara að fóta sig í tilverunni er gott að
halda í eitthvað traust og þá getur grind
sem þessi komið að góðum notum.
Trégrindin er úr versluninni Ólaviu og
Óliver og kostar 4160 kr.
Dagbók barnsins er sí-
gild gjöf. Fyrir samvisku-
sama foreldra er hún fjár-
sjóður þegar barnið fer
að spyrja spurninga um
æskuna. Dagbókin er
til í mörgum útgáf-
um og tegundum
og fæst víða.
Dagbók barnsins er yfir-
leitt hægt að fá á verðbilinu
1000-2000 kr.
Leikspjald
er þroskaleikfang sem
barnið getur notað lengi. Fyrir
kornabörn geta fallegir litir og form fangað
hugann og í sumum spjaldanna er líka spila-
dós. Fyrir hin sem eru farin að geta stjórnað
ffingrunum betur getur leikspjald sem
þetta vakið mikla lukku.
Leikspjaldið er úr Ólavíu og Óliver og
kostar 2560 kr.
Vikan 33