Vikan - 27.07.1999, Qupperneq 45
Eftir Gloriu Murphy. Þórunn Stefánsdóttir pýddi.
upp á könnuna. Ég ætla að
ná í bolla handa okkur.
Hún kom með kaffið og
settist við hliðina á honum í
sófanum. Segðu mér nú
hvað er að angra þig, sagði
hann.
Þegar ég fór heim í gær-
kvöldi virkuðu bremsurnar
á bílnum ekki.
Hann leit undrandi á
hana. Hvað gerðist? Þú ert
vonandi ekki meidd?
Nei. Ég keyrði inn í runna
í almenningsgarðinum. Hún
roðnaði. Ég mundi eftir því
að reyna að skipta gírunum
niður, en mundi ekki eftir
því að nota handbremsuna.
Aumingja þú, sagði hann.
Það er ekkert skrýtið að þú
hafir orðið hrædd.
Þetta er ekki allt, sagði
hún alvarleg í bragði. Þegar
ég var búin að jafna mig
svolítið skoðaði ég bílinn.
Ég var með algjöra bíladellu
á sínum tíma, svo ég hef
svolítið vit á bílum. Ég upp-
götvaði að einhver hafði
fiktað við bílinn. Ég er búin
að hringja á verkstæði og
þeir lofuðu að sækja bílinn
og skoða hann. En ég er viss
um að þeir komast að sömu
niðurstöðu og ég.
Rusty gekk að glugganum.
Hún fór á eftir honum og
stóð þögul við hlið hans.
Loks sagði hann: Venju-
lega les maður um svona at-
burði í blöðunum og gleymir
þeim jafnóðum. Hann sneri
sér að henni. En allt í einu
er þetta fólk sem ég þekki;
Bobby, Carol, Pepelope, þú,
jafnvel Sam; ég gleymdi að
athuga hvort hann er kom-
inn heim.
Ertu að segja að það sé
eitthvert samhengi þarna á
milli? Og það hafi eitthvað
með þig að gera?
Hann kinkaði kolli. Ég er
farinn að halda það. Burtséð
frá því að Penelope passar
ekki alveg inn í myndina. Ég
þekki hana reyndar, en við
hittumst mjög sjaldan. Hann
strauk henni um vangann.
Ég verð að fara. A ég að líta
við hjá þér þegar ég er bú-
inn að vinna? Þú getur kom-
ið heim með mér og borðað
kvöldmat með okkur Carol.
Þá getum við talað betur
saman.
Mikið er huggulegt hérna
hjá ykkur, sagði Rae.
Rusty leit í kringum sig.
Það er ekki mér að þakka,
sagði hann. Carol hefur
gaman af að punta í kring-
um okkur með blómum,
teppum og púðum. Hann
brosti breitt. En það var ég
sem valdi þessi flottu eld-
húsgluggatjöld.
Rae hló. Má ég spyrja þig
að svolitlu?
Endilega.
Hvers vegna brá þér
svona þegar þú sást konuna
á kaffihúsinu?
Áttu við Viktoríu?
Rae kinkaði kolli.
Ég veit það svei mér ekki,
sagði hann hikandi. Ein-
hverra hluta vegna fæ ég
gæsahúð þegar ég sé hana.
Hún gretti sig, tók púða úr
sófanum og þóttist vera að
skoða hann. Ég held að hún
sé hrifin af þér, sagði hún.
Heldurðu það? En þú, ert
þú hrifin af mér?
Við vorum að tala um
Viktoríu, ekki mig.
Ég er að tala um þig.
Hann losaði um hárspenn-
una í hárinu á henni.
Hvað ertu að gera?
Mig langaði til þess að sjá
hárið á þér. Það er svo fal-
legt. Þú líka. Hann hallaði
sér að henni, horfði í augun
á henni og kyssti hana. Hún
tók utan um hálsinn á hon-
um ...
Ég er komin heim, kallaði
Carol glaðlega um leið og
hún opnaði dyrnar. Ó, af-
sakið, sagði hún og þóttist
verða vandræðaleg. Ekki
láta mig trufla ykkur.
Rae var eldrauð í kinnun-
um en Rusty hló. Hæ, sagði
hann við systur sína. Þú
manst eftir Rae, er það
ekki?
Auðvitað man ég eftir
henni. Sæl Rae.
Sæl. Rae tók hárspennuna
upp af gólfinu og tók hárið
saman í hnakkanum.
Ég þarf að segja ykkur
svolítið, sagði Carol.
Fleiri símhringingar?
spurði Rusty kvíðinn.
Carol hristi höfuðið. Nei,
sem betur fer. Manstu eftir
Millý. Hún var í klíkunni
þinni, ég man ekki eftirnafn-
ið hennar.
Carton, sagði Rusty.
Það passar! Hún er horfin.
Hún hefur alla vega ekki
mætt í leikskólann.
Byrjaðu nú frá byrjun.
Um hvaða leikskóla ertu að
tala?
Millý er forstöðumaður
leikskóla í miðbænum, litla
systir hennar Fannýar er í
þessum leikskóla. Dag
nokkurn í síðustu viku mætti
hún ekki í vinnuna og eng-
inn hefur heyrt frá henni.
Hún býr á annarri hæð í
sama húsi og leikskólinn er,
bíllinn hennar stendur fyrir
utan húsið en enginn hefur
séð haus né sporð af henni
sjálfri.
Hefur lögreglan verið lát-
in vita?
Já. Foreldrar hennar
hringdu og tilkynntu að hún
væri horfin en þeir gerðu
ekki svo mikið sem að lyfta
fingri.
Rusty gekk að bókahill-
unni og tók fram bók. Út-
skriftarbókin frá árinu 1981,
sagði hann við Rae. Það er
kannski ekki svo vitlaus
hugmynd að blaða í gegnum
hana.
Vikan 45