Vikan - 27.07.1999, Page 50
Texti: Þórunn Stefánsdóttir
ÍTÖTTUGUi
ÞESS AÐ
Það er laugardagskvöld og þú ert al-
ein. Þú situr og starir á símann og
veltir því fyrir þér hvort þú eigir að
hringja í einhverja vinkonu þína.
Hvers vegna hikar þú? Það er vegna
þess að þú veist að hún mun spyrja
þig hvort þú ætlír ekki að hitta
Gumma í kvöld. Þú getur ekki hugsað
þér, rétt einu sinni enn, að segja nei,
þú ætlir ekki að hítta hann í kvöld.
Staðreyndin er nefnilega sú að þú átt
kærasta en ert þrátt fyrir það ákaf-
lega eínmana. Þú verður að horfast í
augu við það að fyndni, blíðf, spenn-
andi, en jafnframt víðsjáli maðurinn,
sem þú telur vera kærastann þinn,
meinar kannski alls ekki neítt með
sambandinu.
Gummi heldur þér í ákveðinni fjar-
lægð vegna þess að hann er nýkom-
inn úr erfiðu sambandi. Hann er ekki
tilbúinn að binda sig strax aftur en
hefur alls ekkert á móti því að
skemmta sér svolítið meðan hann
sleikir sárin.
Samband eins og þetta getur verið
mjög gefandi og náið meðan það var-
ir. Kynlífið er frábært. Naumt
skammtaðir ástarmolarnir sem falla
af borðum hans verða vanabindandi.
Þess vegna heldur þú þetta út. Þú
trúir því í raun og veru að einn góðan
veðurdag opnist augu hans og hann
sjái að þú ert hin eina sanna. Þú
þurfir bara að sýna þolinmæði.
En það er betra fyrir þig að horfast í
augu við raunveruleíkann. Það er öllu
líklegra að hann fari með þolinmæð-
ina þína, ásamt bindinu sem þú gafst
honum, beint i fangið á næstu konu.
A L V A R A
Hér koma nokkrar vísbendingar
um að sambandið sé í raun og
veru ferðalag eftir langri
blindgötu. Ef þú kannast við fleiri en
þrjár þeirra skaltu flýta þér að bakka
úr sambandinu. Vertu heiðarleg - það
er enginn að fylgjast með.
1> Þú ert með honum á föstudögum
eða laugardögum. Aldrei alla helg-
ina. Karlmaður sem elskar þig og
girnist hagar sér ekki þannig, þó
ekki væri nema hormónanna
vegna!
2. Þú hefur aldrei hitt fjölskyldu hans
jafnvel þótt hann tali stöðugt um
hana. Það er svo sem ekkert at-
hugavert við það að hann vilji halda
þér og fjölskyldunni aðskildri að
svo komu máli. En hvers vegna
alltaf að vera að tala um hana? Það
er vegna þess að með því er hann
að segja: Hingað og ekki lengra.
Þið eruð í nánu sambandi en að
hans mati eruð þið ekki nógu náin
til þess að hann sjái ástæðu til þess
að kynna þig fyrir fjölskyldunni.
3. Þér finnst indælt hvað hann hefur
mikinn áhuga á því að vita hvernig
þú verð tíma þínum þegar þið eruð
ekki saman. Það er hinn mesti mis-
skilningur. Hann er einfaldlega feg-
inn því að þú hangir ekki alltaf yfir
honum.
4. Hann segir að gjafir eins og blóm
og ilmvatn séu lítillækkandi fyrir
konur.
5. Það er fimmtudagskvöld og ennþá
hefur þú ekki hugmynd um hvort
þú kemur til með að hitta hann um
helgina. Hann er ekki að reyna að
koma þér skemmtilega á óvart.
Hann er einfaldlega að halda öllum
möguleikum opnum.
6. Þú ert alltaf að segja vinum þínum
hvað hann vinni mikið og hvað það
sé frábært að vera með rnanni sem
veitir þér svo mikið sjálfstæði. Bull
og vitleysa. Þú ert einfaldlega að af-
saka hann. Þú getur blekkt vini
þína. En þú getur aldrei blekkt
sjálfa þig.
7« Vinur þinn spyr þig hvort það hafi
aldrei hvarflað að þér kærastinn
þinn sé í raun og veru giftur maður.
Nei, stamar þú, auðvitað er hann
ekki giftur. Hann hefur bara svo
mikið að gera.
8. Honum er boðið í brúðkaup í fjöl-
skyldunni og býður þér ekki með.
Kannski getur hann ekki hugsað
sér að mæta öllum forvitnisaugun-
um. En ef þið hafið verið saman í
meira en þrjá mánuði - komdu þér í
burtu sem allra fyrst.
9. Hann þegir þunnu hljóði yfir af-
mælisdeginum þínum sem nálgast
óðfluga. Hann gæti svo sem verið
að skipuleggja partí, en á hinn bóg-
inn ...
10. Hann kynnir þig sem vinkonu sína
fyrir fólki.
11 > Hann tekur ekki annað í mál en
að þið sofið í sitt hvoru herberginu
þegar þið heimsækið foreldra hans í
sveitina.
12. Þú kynnir hann ekki fyrir vinum
þínum vegna þess að þú veist að
þeir myndu ekki leggja blessun sína
yfir hann. Hvers vegna ekki? Ef þú
ert ánægð eru vinir þínir ánægðir.
Þú verður að viðurkenna að þú hef-
50 Vikan