Vikan - 27.07.1999, Page 59
Kæra Stína
Þú ert ekki of gömul til að vera með
svokallaðar unglingabólur. Slík húð-
vandamál geta verið þrálát og sumir
eru með graftarbólur í andliti þótt
komið sé fram á miðjan aldur. Þú ættir
að leita til sérfræðings með þetta
vandamál því húðsjúkdómalæknar eru
best til þess fallnir að greina húð þína
og leggja til hvers konar meðferð þú
þurfir. Það er mjög skiljanlegt að þér
skuli líða illa og margir eru í sömu
sporum staddir. En hafðu hugfast að
þetta er vandamál sem er hægt að
leysa í samvinnu við lækni og með
töluverðri þolinmæði. A meðan þú
bíður þess að komast að hjá húðsjúk-
dómalækni skaltu leggja kökumeikið
til hliðar því afar líklegt er að það
henti alls ekki þinni húðgerð og geri
aðeins illt verra. Fáðu þér frekar litað
dagkrem, drekktu mikið af vatni og
líttu jákvæðum augum á lífið og tilver-
una. Gangi þér vel!
Kæri Póstur
Ég var mjög ánægð að sjá að gamli
góði Pósturinn væri kominn aftur í
Vikuna og ég vona að þú svarir bréfinu
mínu. Þannig er mál með vexti að mér
semur illa við konu sem vinnur með
mér á hverjum degi. Mér líkar að öðru
leyti mjög vel í vinnunni þar sem ég
hef starfað samfleytt í næstum tíu ár.
Umrædd kona hóf störf fyrir u.þ.b. ári
og hefur alltaf verið með leiðindi við
mig. Hún gerir grín að klæðaburði
mínum og eiginlega öllu sem viðvíkur
útliti mínu. Hún lætur ekki svona við
neinn annan á vinnustaðnum. Staðan
er orðin þannig að mér finnst ég vera
stressuð nálægt henni og klaufaleg. Ég
þoli þetta ástand ekki lengur og vil
mjög gjarnan fá góð ráð.
Hildur
Kæra Hildur
Lýsing þín á samskiptunum við sam-
starfskonu þína er dæmigerð fyrir ein-
elti. Okkur hættir til að tengja hugtak-
ið einelti við börn og unglinga en sann-
leikurinn er hins vegar sá að fólk á öll-
um aldri verður fórnarlömb eineltis.
Þú þarft fyrst og fremst að reyna að
rjúfa þennan vítahring
þar sem þú ert skot-
spónninn og komast hjá
því að gefa færi á þér.
Einelti á sér ávallt upptök
hjá þeim aðila sem beitir
því og rannsóknir hafa
sýnt fram á að slíkir ein-
staklingar hafa mjög lágt sjálfsmat.
Þeir beina athyglinni frá sjálfum sér og
sínum vandamálum yfir á aðra. Svona
fólk er hvimleitt í umgengni. Eðlilegast
væri að þú snerir þér til starfsmanna-
stjóra og ræddir þessi mál við
hann/hana og leitaðir ráða til að leysa
málið. Hugsanlega væri hægt að færa
konuna til innan fyrirtækisins og það
er einnig alveg inni í myndinni að hún
yrði rekin fyrir þessa framkomu. Þú
þarft sjálf að reyna að brynja þig gagn-
vart árásum hennar. Ef þú gerir þér
grein fyrir að þessi kona á í raun bágt
og líður fyrir mjög lélegt sjálfsmat, þá
ertu betur í stakk búin til að verjast
skotum hennar. Berðu höfuðið hátt og
láttu athugasemdir hennar sem vind
um eyru þjóta. Smám
saman mun hún gefast
upp. Það er nefnilega
ekkert gaman að vera
á stöðugum skotæfing-
um ef árangurinn er
enginn ...
Spurningar má
senda til „Kæri
Póstur" Vikan,
Seljavegi 2, 101
Reykjavík. Farið er
með öll bréf sem
trúnaðarmál og
þau birt undir
dulnefni.
Netfang: vikan@frodi.is Vikan 59
Kæri Póstur
Ég er sautján ára stelpa sem er mjög
illa haldin af unglingabólum í andliti.
Ég er búin að reyna allt mögulegt til
að losna við þetta en ekkert gengur.
Þetta hefur slæm áhrif á sálarlíf mitt
því ég hugsa stöðugt um bólurnar og
hvað ég sé óaðlaðandi. Ég reyni oftast
að fela þetta með því að bera þykkt lag
af kökumeiki á húðina og þá verð ég
aðeins öruggari með mig, en finn samt
að það er bara enn verra fyrir húðina.
Hvað get ég gert? Er ég ekki vaxin
upp úr því að vera með unglingabólur?
Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna,
Stína.