Vikan - 08.08.2000, Síða 36
Ágústa Ragnarsdóttir fékk
uppskriftina að innbökuðu
lúðunni hjá vinkonu sinni fyr-
ir nokkrum árum og eldar
þennan gómsæta rétt nokk-
uð oft þegar hún fær gesti í
mat. Ágústa býr í Hafnarfirði
og er heimavinnandi hús-
móðir með mann og fimm
börn. „Yngsta barnið mitt,
einkasonurinn, er fjögurra
mánaða en elsta dóttirin er 23
ára. Við vorum samstíga,
mæðgurnar, því við eignuð-
umst báðar drengi á þessu
ári,“ segir Ágústa. Alltaf er
nóg að gera á stóru heimili og
Ágústa er alsæl yfir að vera
heima að hugsa um börn og
bú. „Ég hef heyrt að mynd-
arlegar húsmæður þurfi að
kunna þrennt! Þær þurfa að
geta gert heimatilbúinn ís,
frómas og bernaise sósu,“
segir hún brosandi. „Ég er fín
í ísnum og sósunni en mér
finnst frómas ekki góður eft-
irréttur þannig að mig langar
ekki einu sinni að læra að búa
hann til.“ Ágústa segir að vin-
kona hennar matbúi lúðurétt-
inn stundum í einhverju
magni og frysti í smáum
skömmtum sem alltaf sé gott
að grípa til.
Innbökuð lúða
f. 4-6
1 1/2 kg smálúðuflök,
roðdregin og beinhreinsuð
1 pk. smjördeig (þetta
með tveimur plötum í)
1 tsk. tímían
börkur af einni sítrónu
(geymið safann)
2 stilkar fersk steinselja
1 laukur, saxaður
Smjördeigið er flatt út og
mótað í tvo fiska. Gætið þess
að móta fiskana ekki of stóra
því þeir verða að passa á ofn-
plötuna. Helmingur lúðu-
flakanna er settur ofan á ann-
an smjördeigsfiskinn og
krydd, sítrónubörkur og lauk-
ur koma þar ofan á og afgang-
urinn af fiskinum síðast.
Þessu er lokað með hinum
smjördeigsfiskinum. Deigið
er klipið saman með gaffli og
hreisturmynstur gert með
skeið. Bakið í 20-25 mínútur
á ofnplötu við 180-200 gráðu
hita.
NÓI SÍRÍUS
Berið fram með
hollandaise sósu, hrís-
grjónum og salati.
Hollandaise sósa
5 eggjarauður
250 g smjör (lítill pakki
afsmjöri)
1 tsk. kjötkraftur
1 tsk. salt
slatti af sítrónusafa
(eftir smekk)
Bræðið
smjörið og þeytið eggjarauð-
urnar. Setjið brætt smjörið
mjög hægt og varlega saman
við rauðurnar (alls ekki allt
smjörið í einu, þá eyðileggst
sósan) og síðan krydd og
sítrónusafa eftir smekk.
Ágústa niótar
smjördeigið eins
og fisk utan uin
lúðuna og býr til
hreisturniynstur
með skeið.
36 Vikan