Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 12.07.1973, Qupperneq 4

Vikan - 12.07.1973, Qupperneq 4
Ei bú ert að: BYGGJA. BREYTA EBA BJETA bí líitu vifl í LiuvtrL bvi bafl feehr ívallt bmaflsii Símar 32262 - 30280 oo 30480 Grensásveoi 22 - 24 P0STURINN EIN OR EYJUM Elsku Póstur minn! Ég þakka gott efni i Vikunni undanfarin ár, ég les hana alltaf. Nú langar mig. að biðja þig að hjálpa mér. Þannig er mál með vexti, að ég er hrifin af strák. Við vorum bliin að vera saman i tæpa 5 mánuði, þegar ég fékk þær dillur áð segja honum upp. Nú er hann heima hjá sér og ég er úr Eyjum og verð hingað og þangað. Hvað á ég að gera til að ná i hann aftur, þvi ég elska hann. Ein úr Vikrinum Ef þú veizt heimilisfang eða simanúmer stráksins gætirðu hringt i hann eða skrífað honum, svona til að heyra I honum hljóðið. Ef hann tekur þér vel geturðu getið þess við hann að þú elskir hann og spurt hann hvort hann elski þig. Ef svo er, er kominn góður grundvöllur til að þið getið byrjað að vera saman á ^ý- ALDREI KYSST MIG Kæri Póstur! Vandamál mitt er sennilega fremur óvenjulegt, en svoleiðis er nú mál meö vexti, að ég hef verið meö strák i fimm mánuði, en hann hefur aldrei kysst mig! Hann hefur oft boðið mér i bió og á böll. Og alltaf þegar við erum úti að labba leiðumst við. Og þegar við förum á böll, dönsum við alltaf saman og vöngum eins og flestir gera, þegar þeir eru saman. Elsku póstur hvað á ég að gera, ég er alveg ofsalega hrifin af honum? Og svo er þetta venju- lega, hvernig er skriftin og hvað lestu úr henni? Hvernig eiga nautsmerkið og bogamerkið sam- an og i öðru lagi tviburamerkið og ljónsmerkið? Með fyrirfram þökk. I.H. Þetta orðtak að vera með er afskaplega óljóst, og verður pósturinn að játa, að hann hefur aldrei verið viss um merkingu þess. Samkvæmt brcfi þfnu er þarna um ást að ræða, að minnsta kosti frá þinni hálfu. Annars eru til ýmsar aðferðir til að koma strákum til við sig. Eina þeinna gætir þú kannski notað næst, þegar þið farið saman á ball. Ef að Hkum lætur munuð þið vanga saman og þá gætirðu reynt að vera venju fremur ástleitin og gera tilraun til að kyssa strákinn beint á munninn. Strákurinn hlýtur að vera meira en litið skrýtinn, ef hann tekur ekki við sér. En annars, hvers vegna endi- lega kyssast? Af bréfi þinu má ráða, að þið virðist vera það, sem kallað er hamingjusöm á bió- og ballferðum ykkar. Er það kannski vegna þess að allar stelp- urnar þarna, sem eru með strákum hafa kysst strákana sina. Vertu nú svolitið sjálfstæð og gerðu bara það sém þú sjálf vilt, án tillits til hvað sé lenz.ka eða tizka þarna á svæðinu. Svo ætti ekki að saka að tala málin út við strákinn þinn. Segja honum hreinlcga að þú hafir mikinn hug á að fá að kyssa hann og það helzt beint á munninn. Þú skrifar mjög vel og skriftin bendir til snyrtimcnnsku og nákvæmni. Nauts og bogamerkið eiga ekki mjög vel saman, en tvi- bura og ljónsmerkið eiga öllu betur saman. BREIÐAR VARIR OG BINDINDI Kæri Póstur! Þar sem ég veit, að þú leysir hvers manns vanda, langar mig að biðja þig um að svara fyrir mig nokkrum spurningum. 1. Hvað þýðir nafnið Ester? 2. Getur þú sagt mér, hvað hægt er að gera við breiðum vörum? Hvernig á að mála þær o.fl.? 3. Getur þú nefnt mér einhverja ungling^stúku hér i Reykjavfk og sagt mér, hvað er starfað i þeim? Kostar eitthvað að vera i þeim? 4. Hvernig passa saman bog- maður og meyja? 5. Hvernig er skriftin, og hvað lestu úr henni? 6. Hvað heldurðu, að ég sé gömul? Meö beztu þökkum fyrir góð svör. Ein spurul. 4 VIKAN 28. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.