Vikan

Eksemplar

Vikan - 12.07.1973, Side 32

Vikan - 12.07.1973, Side 32
Þáttur í ums já Jens Holse, garðyrkjumanns Blóm úd og irmi Þegar þér fáið blómvönd, er það eðlilegt að þér byrjið að dást að fegurð blómanna. Næsta hugsun- in hlýtur að vera, hvernig á að meðhöndla þau svo þau endist sem lengst? Það er í sjálfu sér nokkuð harðneskjulegt að skera plöntu af rót sinni, svo eðlilegt er að við gerum okkar bezta fyrir hana síðustu daga blómstrunar- tímans, þegar við viljum hafa hana í stofum okkar sjálJum okkur og öðrum til ánægju. Fyrsta skilyrði til að afskorin blóm endist vel er, að meðhöndla þau rétt. Finnið strax vasa sem hentar þeim, hann þarf að vera vel hreinn og setjið ferski, kalt vatn í hann. Þá eru það blómin sjálf: Þótt blómasalínn sé nýbúinn að klippa 'af stöngulend- unum, þarf alltaf að gera nýtt sá~ rétt áður en blómin eru sett í vatn. Skrúfið því frá vatnshananum, takið beittan hníf, haldið stilkn- um undir vatnsbununni og skerið smábita af honum, síðan eru blómin sett í vasann. Seld eru ýmis efni undir ýmsum vörumerkjum til að bæta í blóma- vatnið svo að afskorín blóm end- ist lengur. Sé þess konar efni ekki við hendina, eru þó til þau efni að jafnaði til á hverju heimili sem bjargast má með. Eru það strásykur og borðedik. Blandað þannig: 1 msk. strásykur og 1 msk. borðedik í 1 lítra af vatni. Sykurinn verkar sem næring fyrir blómin og edikið tefur fyrir sýklagróðri í vatninu. Annan hvern dag er vasínn þveginn og ný upplausn sett í hann. Þessi blanda verkar mis- jafnlega á mismunandi tegundir blóma, en yfirleitt endast jurta- kennd blóm (t.d. túlípanar) næst- um tvöfalt lengur en í venjulegu vatni, á trjákennd blóm (t.d. chrysanthemum og rósir) hefur þessi blanda eitthvað minni áhrif. Tóbaksreykur, gasreykur og útgufun frá ferskum, þroskuðum ávöxtum eru óvinir afskorinna blóma (etylen-myndun). Ef þau eru geymd á köldum og dimmum stað yfir nóftina — helzt vafin í dagblaðapappir — eykst endingin enn. J.H.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.