Vikan


Vikan - 10.01.1980, Side 2

Vikan - 10.01.1980, Side 2
 Mest um fólk lida leOcfélagið - kannski það stærsta i heimi! wism 2. tbl. 42. árg. 10. jan.1980 Verö kr. 1200 GREINAROG VIÐTÖL: 4 Guðftnna Eydal skrifar um fjölskyldumál: Þegar unglingar mót- mæla foreldrum sinum. 6 Kókain, heróin og englaryk. Eitur- lyfjavandamálið er ekki aðeins I útlöndum. 12 Sumir segja að ég sé krati: Viðtal við Sverri Hermannsson alþingis- mann. 16 Jónas Kristjánsson skrifar um íslensk veitingahús: Grillið. 18 Förunautur þeirra var dauðinn: Sönn frásögn bandarískrar konu sem lifði af flugslys I Klettafjöllum. Siðasti hluti. 38 Vikan og Neytendasamtökin: Þegar olíuna þrýtur. 50 Ævar R. Kvaran skrifar um undarleg atvik: Dularfulli skugginn í lifi Edwards Kennedys. SÖGUR: 22 Þögnin. Smásaga eftir Gerd Nyquist. 34 Willy Brcinholst: Hvernig á að krækja sér í karlmann. 42 Undir Afríkuhimni. 10. hluti framhaldssögunnar. 48 Stóri bróðir. Smásaga eftir Ásgeir Þórhallsson. ÝMISLEGT: 2 Mest um fólk. 27 VlKU-smakk. 28 Blái fuglinn. 30 Draumar. 32 Opnuveggspjald: KNACK: 36 Peysa i handavinnuhorninu. 40 Vinningshafar i jólagetraun. 52 Vikan og Klúbbur matreiðslumeist- ara: Jarðarberjahlaup meí appelsfnukremi. 54 Heilabrot. 62 Pósturinn. VIKAN. Otgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: HeU,; I\ituiNson. Blaðumenn: Borghildur Anna Jónsdómr Eiríkur Jónsson. Hrafnhildur Sveinsdóttir. Jóhanna Þráinsdóttir. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ing\ar Sveinsson. Ritstjóm . i Siðumúla 23. augl>singai. afgreiðsla og dreifing i Þverholti 11, simi 27022. Póst hólf 533. Veró i lausasölu 1200 kr. Áskriftarverð kr. 4000 pr. mánuð. kr. 12.000 fyrir 13 tölublöð árs fjórðungslega eða kr. 24.000 fyrir 26 blöð hálfsárs lega. Áskriftarverð greiöist fyrirfram, gjalddagar: Nóvember, febrúar, maí og ágúst. Áskrift i Reykjavik og Kópavogi greiðist mánaðarlega. Um málefni neytenda er fjallað i samráði við Neytendasamtökin. ZVikan z. tbl. í sl. 4 ár hefur leiklist staðið með miklum blóma i Garðinum eða allt frá þeim degi er Litla leikfélagið var stofnað. Nú standa yfir sýningar á 6. verkefni þess. Þið munið hann Jörund, eftir Jónas Árnason. Jónas getur áreiðanlega talið meðlimi Litla leik- félagsins á meðal sinna tryggustu aðdá- enda, þvi þetta er 3. leikritið sem þeir sýna eftir hann. — Auk þess að sýna i Garðinum fórum við líka I leikför i fyrra með tvö af verkefnunum, Delerium Bubonis og Sjö stelpur, sögðu þau Sigurjón Kristjáns- son, Hólmberg Magnússon og Jonna Sigurjónsdóttir, fulltrúar Litla leik- félagsins, er þau heimsóttu Vikuna fyrir skömrnu. — Og nú tókum við upp það nýmæli að bjóða nentendum úr Grunn- skóla Keflavíkur á æfingu hjá okkur á Jörundi, ásamt kennara sínum, Torfa Steinssyni, en hann er einnig fyrrverandi formaður félagsins okkar. Þau voru sjálf að æfa jólaleikrit í skólanum og langaði að sjá hvernig „alvöru” leikrit yrði til. Þau fengu að kynna sér allt það sem tilheyrir einni leiksýningu. eins og sviðs- útbúnað, Ijós, saumaskap á búningum og förðun. Leikstjórinn, Jakob S. Jóns- son, veitti þeim greinargóðar upplýsing- ar um það sem fyrir augu bar. Einkum virtust þau þó furða sig á þvi, hversu mikið verk það er að fullvinna einn búning sem er svo kannski ekki notaður nema í fimm mínútur á sviðinu. Fulltrúar leikfélagsins i heimsók1 hjá Vikunni: Hólmberg Magnússoi1 Jonna Sigurjónsdóttir og Sigurjó' Kristjánsson. Þið munið hann Jörund: Jörundu< (Viggó Benediktsson) dáist að trefl inum frá Dölu Völu (JonnU Sigurjónsdótturl: En hvað hann e' fínn, brugðið og slétt... Krakkarnir voru greinilega feikij hamingjusamir með þessa kynningu, s v< hver veit nema þetta verði fastur liðuii hjá okkur! — Aðstaða til sýninga er langt frá þ' að vera fyrsta flokks, en við noturt Félagsheimilið sem leikhús. Bæði sjálfl húsið og sviðið er of lítið og búningSi aðstaða léleg. En nú höfum við útbúií innra svið úr stáli, sem auk þess er hæS1 að ferðast með, og það hjálpar upp ^ sakirnar. Til gamans má geta þess að naff félagsins er engan veginn réttnefni, þ'1 miðað við fólksfjölda er það áreiðanleg3 með þeim stærstu í heimi. Af rúmleg3 600 íbúum Garðsins eru milli 80 og 9® félagar í Litla leikfélaginu og taka um 39 af þeim þátt í sýningunni á Þið munió hann Jörund. Núverandi formaður er Sigfú* Dýrfjörð. Krakkamir úr Grannskóla Keflavíkur fylgjast með útskýringum leikstjórans af miklum áhuga.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.