Vikan


Vikan - 10.01.1980, Side 17

Vikan - 10.01.1980, Side 17
feiti. Hrásalatið var hins vegar einfalt og gott, litillega oliuvætt. Þessi réttur var á fastamatseðlinum. Verðið er 12.450 krónur sem aðalréttur, borinn fram á diski. Grísakjöt Af kínverska matseðlinum prófaði ég steikt grísakjöt i súrsætri sósu. Mér fannst það vel frambærilegt. Einkum átti sósan vel við ananas og sýrða gúrku, sem fylgdu kjötinu. Hrísgrjónin, sem fylgdu með, voru mjög vel heppnuð, einföld í matreiðslu °S stinn, alveg laus við að vera ofsoðin. Það hefur semsagt ekki tekist enn að sP'Ha kínverska kokkinum meö islenskum ósiðum. Verðið er 4.800 krónur sem aðalréttur. Kjúklingur Enn betra af kínverska seðlinum reyndist kjúklingur i ostrusósu. Kjúklingurinn var að vísu mauksoðinn að austrænum hætti, en ostrusósan átti alveg einstaklega vel við hann, gaf réttinum sérstakan sjarma. Ekki fann ég bö neitt ostrubragð að sósunni. Ég tel, að með slíkum réttum eigi kinverskur matseðill fullan rétt á sér sem hliðarseðill á Grillinu. Verðið er 4.800 krónur sem aðalréttur. ÍS Sólberjaís var á matseðli dagsins, öálítið sérstakur vegna sólberjanna, ágætis tilbreyting frá ávaxta- og berja- isum þeim, sem kunnari eru. Verðiðer 1.200 krónur. Mun þetri var þó appelsínu-kraum- Isinn eða sorbet-inn, sem var á fastamat- seðlinum. Hann var einstaklega vel gerður, alveg svifléttur og hressandi i niunni og maga og ekki of bragðsterkur. Ég hef ekki fengiö betri kraumís hér á landi. Það er synd og skömm, að íslendingar skuli vilja þunga eftirrétti. Það er eins og menn vilji kýla svo vömbina á veitinga- húsum, að þeir geti tæpast staðið upp. Tilgangur eftirrétta er hins vegar sá að létta menn og hressa. Og það gerir sorbet hiklaust. Verðiðer 1.575 krónur. Ostur Ostabakki með kexi og smjöri var á fastamatseðlinum. Þetta var fjölbreyttur bakki með gráðaosti, camembert, port salut, mysuosti og fleiri ostum, svo og ýnisum tegundum af kexi. Þetta var góður bakki. Meira að segja oamembertinn var þroskaður í gegn, sjaldgæf sjón á íslensku veitingahúsi. Verðið er 2.665 krónur. Vín Vínlistinn á Grillinu er ekki nógu Söður, einkum í rauðvínum. Þar vantar matargerðarlist, sem ræður rikjum hjá íslenskum matreiðslumönnum I þunglamalegri, danskri útgáfu, hefur á síðasta áratug vikið i upprunalandinu fyrir hinu svonefnda „nýja, franska eldhúsi”, sem hefur haldið innreið sina I velflest bestu veitingahús Frakklands. Hér heima er greinilegt, að Grillið á Hótel^ögu hefur losað sig undan ofur- þunga hinnar hefðbundnu matreiðslu og stigið nokkur skref í átt til hinnar léttu, nýju matreiðslu. Léttar og hveitilausar sósur, hrásalat í stað mauksoðins dósagrænmetis, ferskur fiskur og vel gerður, mjólkur- og rjómalaus kraumís eru nokkur dæmi um þessa þróun. Sykurbrúnuð eða smjörsteikt brauðmylsna er hins vegar dæmi um steingervinga eldri tlma, svo og djúpsteiktu laukhringirnir. Næsta skref Grillsins gæti falist I nákvæmari og styttri eldunartíma. Vonandi aðstoða viðskiptavinirnir hina ágætu eldunarmeistara í viðleitni þeirra, fleiri skrefum þeirra á brautinni til æðri matargerðarlistar og betra heilsufars viðskiptavina. Þjónustunni á Grillinu mátti gefa níu i einkunn, matseldinni átta og vinlistanum sex. Með hliðsjón af mikilvægi matseldarinnar I mati á veitingahúsum tel ég heildareinkunn veitingastofunn- ar vera átta af tiu mögulegum. Jónas Kristjánsson 1 næstu Viku: Blómasalur Hótel Loftleiða Ábyrgðarmenn I Grillinu: Sigurvin Gunnarsson yfirmatreiðslumeistari, Huld Goethe inspector og Óli Harðarson matreiðslumeistari. Mynd: Hörður. Chateau Talbot, Geisweiler Grand Vin og einkum þó hið ódýra Trakia. Merkinu halda uppi Chateau Paveil de Luze. Chateauneuf-du-Pape og Chianti Classico. í hvítvinum er ástandið betra, því að þar fást Wormser Liebfrauenstift KirchenstUck, GewUrztraminer, Chablis og Bemkasteler Rosenberg eða Schloss- berg. Meðal annarra frambærilegra vina á lista Grillsins eru Saint Emilion, Paralelle 45, Geisweiler Reserve og Mercury af rauðvínum og af hvítvínum Riesling og Auxerrois frá Luxembourg, Sauternes og Rúdesheimer Burgweg. Meðskeldýraréttum Stjörnusalar mæli ég með Chablis á 4.675 krónur, með fiskréttunum mæli ég með Gewtirztram- iner á 4.010 krónur og með kjöt- réttunum mæli ég með Chianti Classico á 3.340 krónur. Ekkl dýrt I samanburði við hliðstæða veitinga- sali í Vestur-Evrópu norðan Alpafjalla er Stjörnusalur Hótel Sögu ekki tiltakanlega dýr. Aðalréttur af matseðli dagsins með súpu og eftirrétti kostar að meðaltali innan við 9.000 krónur. Með kaffi og Chianti vínflösku, hálfri á mann, til iviðbótar kostar hann um 12.000 krónur. Af kínverska matseðlinum mundi hliðstæð máltið kosta um 9.000 krónur. Á fastamatseðlinum er verð fimmtán forrétta, súpa og eggjarétta að meðaltali um 3.400 krónur, verð 26 aðalrétta úr fiski eða kjöti aö meðaltali um 8.500 krónur og verð átta eftirrétta að meðaltali um 2.100 krónur. Með kaffi og hálfri vínflösku ætti meðalmáltíð af fastaseðlinum að kosta um 16.000 krónur á mann. 1 hádeginu býður Grillið upp á sérstakan heimilismat, yfirleitt súpu og aðalrétt, á rúmlega 4.000 krónur. Það er sérlega lágt verð, en ég hef því miður ekki haft tíma til að prófa gæðin. Á framtíðarvegi Hin hefðbundna, franska 2. tbl. Vlkan 17

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.