Vikan


Vikan - 10.01.1980, Qupperneq 18

Vikan - 10.01.1980, Qupperneq 18
Sönn frésögn FÖRUNAUTUR ÞEIRRA VAR DAUÐINN Alein í auðninni Víð vorum þijú í l'rtíu flugvélinni, sem brotienti aðeins nokkra metra frá fjallsbrúninni. Nú var ég ein eftir. Jean dó nokkrum klukkustundum eftir óreksturinn, Jay þraukaði af nóttina með mér, en í dögun tók dauðinn hann einnig í náðarfaðm sinn. Enn sá ég engin merki þess, að leit vœri hafin að okkur. Og ég gat ekki hugsað mér aðra nótt á fjallinu. Ég varð að komast niður fjallið, niður í dalinn, þar sem mér yrði aftur hlýtt. baröist hetjulega gegn löngun minni að lita niður fyrir mig, því að öllum Ukindum væri það mér ekki til góÖK að sjá til hlitar, hvílíka hættuför ég hafði tekist á hendur. Ég reyndi að hugsa ekki of mikið um það, þar sem ég hékk utan í þverhníptum fjallstindinum . . . eina lifandi veran i þessari ísköldu auðn. Ég kæmist þetta aldrei! Og þó mjakaðist ég áfram niður. Einhvern veginn í ósköpunum mjakaðist ég niður andlit fjallsins. Hláturinn bergmálaði í auðninni Ég hafði ekki hugmynd um, hversu langt ég hafði þokast, en eftir um það bil klukkutima klöngur varð ég þess vör, að brattinn var ekki alveg eins mikill. Ég leit i kringum mig og sá, að þetta var rétt athugað. Ég hafði nú fikrað mig þó nokkurn spöl niður á við eftir stein- nibbum, sem stóðu upp úr snjónum með vissu millibili, og nú sá ég nýja leið til að komast að næstu steinnibbu. Ég hélt pilsinu þétt um lærin, settist á hjarnið og renndi mér að næstu nibbu. Það var ekki hættulaust, og í fyrstu atrennu lá við, að ég rynni framhjá, en á siðasta augnabliki gat ég þrifið utan um nibbuna og ríg- haldið mér. Ég heyrði hlátur minn berg- mála í auðninni. Brátt stóð ég upp og hélt áfram að feta mig niður á við. Stigvélahælarnir brutu hjarnskurnina, og stundum sökk ég í snjóinn upp fyrir hné. Það var ekki nota- legt að finna stígvélin fyllast af snjó, en það var tilgangslaust að stansa til að losa þau, þau fylltust alltaf aftur. Kuldinn angraði mig reyndar ekki lengur. Veður og færi sem þetta hefði áreiðanlega getað freistað margra skíða- manna, og mér var alls ekki kalt, ef ég var á stöðugri hreyfingu. Hefði flugvél flogið yfir í þessu, hefði flugmaðurinn ef til vill komið auga á dökkan díl, sem hreyfðist örhægt. Og kannski hefði hann hugsað: „Hvað í ósköpunum er kvenmaður í pilsi og háhæluðum stígvélum að gera hér, og hvern fjandann er hún að fara? Og ég hefði hlegið og veifað eins og vitlaus manneskja, og kannski hefði ég jafnvel æpt til hans: Ég er á leiðinni heim, kunningi! Égerá ieiðinni heim'. Það kom bara engin flugvél. Það var langt liðið á morguninn og enginn var farinn að leita að mér. Eða svo hélt ég. Kaldur snjórinn linaði sársauk- ann Nú voru áreiðanlega liðnir nokkrir klukkutímar, og ég hafði ekki einu sinni þokast helming þess hluta leiðarinnar, sem snjór lá yfir. Ég var orðin þreytt í fótunum, þreytt á snjónum í stíg- vélunum. Ég settist á stein til þess að hvíla mig stutta stund og horfði þreytu- lega í kringum mig. Þá sá ég þau. Þau stóðu þarna í snyrtilegri röð undir klettunum skammt frá mér, lítil, falleg hús, rauðmáluð timburhús. Þetta hlaut að vera nýreistur skiðabær, hugsaði ég. Ég þaut upp, gripin miklum æsingi, og hraðaði mér sem mest ég mátti I átt til húsanna. Áður en ég vissi af, sökk ég djúpt i snjóskafl. Snjórinn lagðist að mér, og ég lá kyrr um stund, því kaldur snjórinn linaði sársaukann í fótum mínum. Svo kraflaði ég mig út úr skaflinum og hélt áfram, knúin hugsun- um um það, sem biði min, þegar ég næði til húsanna. Yrði ég að brjótast inn í þau? Yrði þar fatnaður handa mér og eitthvað að borða? Eigin frásögn Laur- enar Eldon af flug- slysi, sem hún lenti f ásamt tveimur öðr- um, og þeim ógn- um, sem á eftir fylgdu. Þá kom ég auga á hann og snar- stansaði. Karlmaður með sítt, Ijóst hár stóð og teygði úr sér á veröndinni við stærsta húsið. Hann var í hvítum slopp. sem bylgjaðist um hann. „Halló!” hrópaði ég andstutt. „Ég lenti í flugslysi. Ég þarfnast hjálpar." Hann hreyfði sig ekki. Ég sá, að stór, svartur kross hékk um háls hans. Ég vissi ekki, hvað ég átti að halda. Þá rann upp fyrir mér, að þetta var stytta. Ég hafði séð svona styttur i Alpa-' fjöllunum, en þar eru þær reistar á stöðum, þar sem einhver hefur farist eða bjargast úr slysi. Ég sá sleðaför um allt, slóðirnar skárust hvað eftir annað. Börn höfðu verið þarna að leik nýlega. Ég heyrði jafnvel til þeirra. Ómurinn af hlátrum þeirra barst til mín eins og klukkna- hljómur. Það var svo ótrúlega dásamlegt að finna þessi hús þarna. En hvar var vegurinn? Það hlaut að vera vegur. Ég stansaði, þegar ég kom að fyrsta húsinu. Ég stóð þar lengi og neri höndunum um kaldan klettinn. Það var ekkert hús, aðeins klettur. Ég deplaði augunum. Engin hús, engin stytta, engin börn. Þegar ég snerti kletttinn, hurfu húsin sjónum. Húsin höfðu aðeins verið til i hugar- heimi minum, ég hafði búið þau til. Ég hafði séð það, sem mig langaði til að sjá, og það hafði verið stórkostlegt, en það hafði bara ekki verið raunverulegt. Sjálfsöryggið hafði beðið hnekki Slíkar tálsýnir birtust mér öðru hverju á langri og erfiðri göngu minni niður fjallið. Ég reyndi að láta þær ekki villa mér sýn. Ég reyndi að líta landslagið raunsæjum augum, en ég leitaði stöðugt að einhverju merki um mannlegt líf, vegi, göngustíg ... einhverju. Sjálfsöryggi mitt hafði beðið hnekki. Tilfinningin í höndum og fótum hafði dofnað af stöðugri snertingu við snjóinn og grjótið, og mér gekk verr en áður að finna hand- og fótfestu. Um það bil tveimur klukkustundum síðar hafði ég lagt bratta fjallshlíðina að baki og var komin niður í gil, en enn virtist mannabyggð órafjarri. Ég kom að SÍÐASTI HLUTI X8 Vlkan X. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.