Vikan


Vikan - 10.01.1980, Qupperneq 23

Vikan - 10.01.1980, Qupperneq 23
Sakamálasaga eftir Gerd Nyquist ÞÖGNIN Skyndilega opnaði hún augun. Hún horfði á litflu vatnsrákina, sem seytlaði niður rúðuna. Svo renndi hún hægt til augunum og horfði beint á mig. í annað sinn á ævinni fann ég þessa einkennilegu tilfinningu, sem hafði gripið mig, þegar ég sá hana í fyrsta sinn — að ég myndi drukkna í augum hennar. 'A ///%■ ' ////■ Drykkjarvatnið væri ágætt, skrifaði hann, litil uppspretta spölkorn frá. Allt væri í lagi og flest fyrir hendi.jFrænka mín hefði verið (tarna á hverju sumri í mrire ár. honum bætti leitt. að hún væri frænku, sem ég var næstum búinn að gleyma, að ég ætti. Ég hlýt að hafa verið eini erfingi hennar. Sýslumaðurinn þar var mér mjög hjálplegur. Hann sendi mér meira að segja kort, og hann hafði merkt selið inn á kortið, og hann hafði merkt leiðina þangað. í þúsund metra hæð yfir sjávarmáli og tveggja tíma gangur til næsta nágranna. Við yrðum að hafa með okkur allt. sem við þyrftum á að halda, þegar við kæmum til sumardvalar. En hann hafði rætt við bónda í dalnum, sem var fús til að flytja fyrir okkur upp eftir olíu og kartöflur. 1 dáin. Ég vissi það ekki fyrr en þá, að þetta gamla sel með hlöðnum garði og lítilli hlöðu rétt hjá komst næst þeirri hugmynd, sem ég hafði gert mér um paradís á jörðu. Þegar ég sit á slitnu varinhellunni fyrir utan dyrnar, heyri ég aðeins þögnina og flugnasuð. Örsjaldan hljóð í flugvél. Hér kemur aldrei fólk. LtkLVlknSI 8ott, Arnold. Ég fékk mér tebolla hérna fyrir framan arininn, og svo fékk ég mér nokkrar kexkökur. — Já, segi ég. Þetta er merkilegt. Ég finn, að ég sit hér og segi frá í nútíð, eins og Eva-Lisa ^ enn á lífi. Enn er allt svo nýtt fyrir mér, enda þótt liðnar séu þrjár vikur, siðan jarðarförin fór fram. Ég verð að fara að hugsa öðruvisi — í þátíð. G það var i vor, sem ég fékk að v‘ta, að ég hefði erft gamla selið eftir Regnið fellur hljóðlaust á torfþakið. Um nætur — ef það hvessir — gnauðar vindurinn þunglyndislega i upsum. 1 paradisinni minni gat ég hlustað á þögnina. En ég fann til þess, hve Eva-Lisa talaði mikið. Heima hafði ég ekki tekið eftir því. En þar hafði ég starfið. Hér vorum við bara tvö — alein. G hugsa, að þetta hefði verið öðruvísi, ef hún hefði reiðst öðru hverju og hækkað röddina og hreint og beint brúkað kjaft. (Einkennilegt, næstum ósæmilegt orðbragð, þegar Eva-Lisa er annars vegar|. En ég heyrði aldrei neitt annað en þessa mildu rödd hennar, sem sagði mér í sífellu, hversu vel henni liði, að henni væri alveg sama, þótt hún væri í þessu eyðiseli og borðaði hrökkbrauð í þrjár vikur og það væri bara skemmtileg tilbreyting að þvo sér i isköldu vatni, þótt hún væri vön að baða sig tvisvar á dag heima, bara að þú sért ánægður, Arnold, þá líður mér vel, er það ekki gott, að viðskulum sofa svona vel, þrátt fyrir hvað dýnurnar eru hnúskóttar og fúkkalykt úr sængunum, það skiptir mig engu máli, ef þér bara líður vel, Arnold . Og svo brosti hún og horfði á mig bláu augunum. Stundum var ég gripinn þeirri einkennilegu tilfinningu. að höfuð mitt væri holt innan — og það eina, sem þar kæmist að, væri milda röddin hennar Evu-Lisu. Það var eins og minum eigin hugsunum — mér sjálfum — hefði verið þrýst út, og i staðinn var komið eitthvað óljóst, mjúkt og loðið. Ef okkur langaði í nýmeti, varð það að vera fiskur. Og mér hefur alltaf þótt gaman að veiða fisk. Hér gat ég gengið um og veitt eins og mig lysti allan þann fisk, sem ég gat borið. Ég notaði bara flugu. Og við borðuðum fisk á hverjum degi. Eva-Lisa var alltaf með mér. Hún elti mig. Hún og röddin hennar. — Fiskurinn, Eva-Lisa, var ég vanur að segja. — þú mátt ekki lala. þú fælir fiskinn. Þá hvislaði hún. Hún stóð þétt uppað mér og hvíslaði að mér. — Hvað við höfum það gott, Amotd. Að geta staðið hér, alein, aðeins þú og ég. Jafnvel þótt það sá dálitið kalt. Hugsa sér alla, sem flatmaga á sðlar- ströndum Spánar og ganga svo að dúkuðu borði, hlöðnu tilbúnum mat ásamt fjölda annars fólks — meðan þú og ég getum verið alveg út af fyrir okkur. Jafnvel þótt við þurfum aðbúa til
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.