Vikan


Vikan - 10.01.1980, Side 31

Vikan - 10.01.1980, Side 31
 Opnuplakat Bandaríska hljómsveitin The Knack FLYTUR EINFALT ROKK FYRIR TÁNINGA The Knack er ein þeirra nljómsveita, sem komu fram á sJOnarsviðið á síðasta ári. Hún Jr^di frá sér LP plötuna Get ,e Knack og af henni komust FVÖ ofarlega á vinsældalista. <Jrst skal frægt telja My arona, sem trónaði á toppi andaríska vinsældalistans 1 'nm saman. Síðar var lagið °od Girls Don’t gefið út á lítilli °tu. það náði ekki jafnmiklum ‘nsældum, þó að það sé síst Verra lag. Tónlist The Knack er einföld og dálítið hrá, en á þó ekkert skylt við nýbylgju og pönk. Miklu fremur minnir hún á tónlist ensku hljómsveit- anna, sem blómstruðu sínu fegursta um árið 1965. í þeim hópi eru Beatles, Small Faces, Rolling Stones, Who og margar fleiri. Hætt er við því að þeir sem helst hlusta á jass eða þróað rokk heyri ekki margt við sitt hæfi hjá Knack. Enda er staðreyndin sú að tónlist hljómsveitarinnar höfðar fyrst og fremst til táninga. Yrkisefnin í lögum Knack eiga einnig betur við táninga en flesta aðra. Sigurjón Sighvats- son, sem skrifaði um The Knack í Dagblaðið á dögunum, komst svo að orði: „Flest lög The Knack fjalla um smápíur. Píur, sem gera það eða gera það ekki, vilja það eða vilja það ekki. í sjálfu sér getur það verið allt í lagi að syngja um smápíur; í það minnsta hafa rokkhljómsveitir gert svo um áratugaskeið. Hins vegar má öllu ofgera og virðist svo sem Doug Feiger aðalsöngvari og lagasmiður sé orðinn fullgamall fyrir svona nokkuð.” Ekki er VIKUNNI kunnugt um, hvort ný plata er á leiðinni frá The Knack. Sú plata ætti hins vegar að leiða í ljós hvort hljóm- sveitin var aðeins ein af loft- bólum síðasta árs eða hvort hún á framtíð fyrir sér með táningatónlistina sína. 2. tbl. Vikan 31

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.