Vikan


Vikan - 10.01.1980, Blaðsíða 49

Vikan - 10.01.1980, Blaðsíða 49
Smósaga STORI BRÓÐIR ElNN laugardagsmorgun mið- sumars óð Tóti út í vör við Skerjafjörð- inn á rauðum klofstígvélum, ýtti bát frá landi og stökk upp á stefnið. Um borð var yngri bróðir hans sem setti upp árar og reri frá landi. Logn var á firðinum og sól á heiðum himni. Þetta var grunnur, opinn plastbátur, hvitur að lit, með þrem rauðum þóftum og svörtum rassmótor, sem var tíu hest- afla Mercury. I botni bátsins lá viðar- kassi fullur af handfærum. Bræðurnir höfðu keypt bátinn af föður sínum um vorið, róið um helgar en sjaldan fengið neitt. Tóti var tuttugu og sjö ára gamall leigubílstjóri sem byrjaður var að fá skalla. Hann hafði brún augu og beint nef, var klæddur dökkblárri duggara- peysu. Bróðir hans hafði sítt ljóst hár, blá augu og hátt enni. Báðir voru þeir langleitir. Bróðirinn hét Davíð en var ætíð kallaður Dabbi. Dabbi var i hvitri lopapeysu og snjáðum gallabuxum og var nemandi í Verslunarskólanum. Tóti kippti i spottann á rassmótornum sem hrökk í gang. Þá tók hann stefnuna til hafs og setti á fulla inngjöf. Faðir þeirra veifaði úr fjörunni og þeir veifuðu á móti. Vatnið frussaði til beggja hliða og báturinn lyftist upp úr að framan. Suðandi vélarglamrið virkaði svæfandi, Dabbi lagöi sig frammi I stafni. Þegar þeir fóru fyrir Suðurnesið kom þung undiralda á móti þeim, það braut á Kerlingarskerinu. Tóti hélt um skaftið á mótornum og stýrði einbeittur á svip. Á golfvellinum í Suðurnesinu elti maður handsláttuvél. Uti á hafi sást skip á út- leið, reyk úr skorsteininum lagði langar leiðir. Hringinn I kringum Kerlingar- skerið voru netabaujur grásleppukarl- anna og frá gulu vörðunni, yst á nesinu, að Gróttu var breitt belti. Lítið útlit var fyrir að nokkur grásleppa kæmist þar í gegn. Baujurnar vögguðu letilega I morgunblíðunni, öldurnar frá bátnum kaffærðu þær. Gróttuvitinn trónaði yfir svæðinu eins og risastór sígaravindill. Um borð var ekki hægt að tala saman fyrir vélarskrölti. Norður af Gróttu hægði Tóti á vélinni og sagði: „Hvar er þetta?” Dabbi spratt á fætur og leit í kringum sig. • „Þú verður aö fara austar. Pabbi sagði að vitann yrði að bera við íbúðar- húsið.” Þeir héldu ferðinni áfram. Eftir stundarkorn drap Tóti á vélinni og sagði: „Nú ber vitann við íbúðarhúsið. Hér skulum við renna. Við getum alltaf fært okkur.” Þeir greiddu úr flæktum færunum. Færin voru vafin upp á kefli sem voru eins og hrossabrestur í laginu. Taumur- inn var blátt gam en girni neðst, segul- nagli á milli. Á hverju færi voru þrír önglar með gúmmíbeitu, neðst var ryðguð sakka. „Pabbi sagði að hann hefði komið hingað í níu daga áður en hann hafi fundið holuna. En á níunda degi tók hann eftir að það dýpkaði, færiö rann lengra út og skyndilega komst hann I gráðugan þaraþyrskling. Hann sagði að maður yrði að vera handfljótur því bátinn bæri fljótt yfir. „En það rekur hægt núna,” sagði Dabbi og slakaði færinu út. Hann hafði gát á að önglarnir kræktust ekki í lúkurnar. Dabbi var á fremstu þóftunni en Tóti á þeirri öft- ustu. Þeir renndu færunum út frá sömu síðunni. Múkki settist á sjóinn í tveggja metra fjarlægð. „Sko, fugl. Þaö er sagt að þá sé fiskur undir,” sagði Dabbi. „Bull,” svaraði Tóti. „Þú trúir ekki á neitt nema peninga.” „Þeir svíkja engan.” Þegar þeir höfðu dorgað um stund sagði Tóti: „Það er ekki branda hérna.” „Við höfum ekki hitt á gatið.” „Æi, þetta er bara lygi í gamla mann- inum.” „Ég veit það er fiskur hérna. Það er bara aðdetta i hann.” „Við skulum kippa," sagði Tóti og byrjaði að hífa færið inn. Þeir hringuðu línurnar á botninn í bátnum. Línan nuddaðist við borðstokk- inn og vatnið draup af henni. „Ég held við ættum að fara nær landi,” sagði Dabbi. Þeir færðu sig nær landi en létu vitann bera i íbúðarhúsið. Múkkinn flaug upp og settist hjá bátnum á ný. Undiraldan brotnaði á klettunum sem voru norðan til á Gróttu. Reykjavfk var að vakna í fjarska; þaðan heyrðist þungur niður. Dabbi lét færið renna sjálfkrafa út og sagði þegar það koma I botn: „Það er dýpra hérna.” „Á.” Augu Dabba stækkuðu og hann hvislaði æstur: „Það er verið að narta í hjá mér.” „Það er bara straumurinn.” „Nei. Ég er með fisk á,” öskraði Dabbi og byrjaði að hifa færið inn með miklum hamagangi. „Það er fast i botni hjá þér.” „Nehei.” Skyndilega öskraði Tóti upp yfir sig: „Ég er meö hann líka.” Og hann byrjaði að hala titrandi lín- una inn. „Þessi fini þaraþyrsklingur,” sagði Dabbi og vippaði rauðleitum þorski inn- fyrir. Múkkinn færði sig nær. Dabbi krækti önglinum úr kjafti þorsksins og fleygði færinu út I flýti. Tóti var líka með þara- þyrskling. Dabbi kipptist við svo minnstu munaði að hann félli kylli- flatur. „Ég er kominn með hann aftur.” „Ég trúi þér ekki,” sagði Tóti og flýtti sér að slaka færinu út. „Dou you have að fisk, mister fix,” sagði Dabbi, það lá við að hann springi af monti. „Það er allt morandi af fiski hérna. Við verðum að blóðga fiskana, annars festist blóðið við hrygginn og þá getum viðekki selt þá.” „Loksins hittum við á fisk.” „Nú veiðum við upp í bensínkostnað í sumar,” sagði Tóti. Þeir innbyrtu hvern fiskinn á fætur öðrum. Oft var fullur slóði; fiskur á hverjum öngli. Þeir blóðguðu á meðan færið rann út en höfðu ekki undan. Þetta var hinn vænsti fiskur. Brátt var komin botnfylli, þá horfði Tóti ýf'r aflann og sagði: „Við getum selt fisksalanum þennan fisk og fengið stóran pening.” Hver fiskurinn á fætur öðrum ran» inn fyrir borðstokkinn. Brátt áttu þ«'r erfitt með að fóta sig, báturinn var ekk' hólfaður svo aflinn gat runnið fram oí aftur í bátnum. Þorskarnir blökuðu sporðinum og gleyptu loftið. Einn °í einn fékk æðiskast og spriklaði allt hvað af tók I smá tima. Þeir sáu á færunum að það grynnkaði, skömmu seinna h®ttr fiskurinn að taka. Bátnum var brugðið- „Okkur hefur rekið yfir holuna.” : „Nú förum við heim. Þetta er nóg. sagði Dabbi. „Nóg,” svaraði Tóti reiður. „Þetta er ekki nóg.” „Báturinn er drekkhlaðinn. Það er skynsamlegra að hafa heldur minna en, of mikið.” „Við látum reka aftur yfir gatið. Bse' þinn eldri bróðir og ég ræð.” „Er hálft tonn ekki nóg? Þú getur ekk' innbyrt alla fiskana sem eru í sjónum.' „Loksins þegar við komumst I fisk viB þú fara heim.” Tóti trekkti vélina í gang og lónaði til baka. Vélinni tókst ekki að lyfta bátnutn upp úr að framan. „Þú ert aldrei ánægður. Þessi græðgi i' þér á eftir að drepa þig einhverá tímann,” sagði Dabbi svekktur. Þeir létu reka yfir holuna á ný. Dab?' renndi færinu út letilega og sagði: „Djöfulsins, andskotans, helvitis.” Dou you have að fisk, mister fix, ; sagði Tóti stríðnislega. „Þegiðu.” Þeir mokuðu fiski á ný. Sífellt seif borðstokkurinn neðar og neðaf Blóðugir þorskarnir flæddu um bátinn- Veiðarfærakassinn fór í kaf. Dabb' settist niður og sagði: „Nú ber báturinn ekki meira.” „Hertu þig upp og haltu áfram. Y'® stórgræðum á þessum róðri.” „Þú ert ekki með öllum mjalla, sve' mér þá. Þú getur ekki hætt. Bor® stokkurinn er fimm sentimetra ^ sjávarborði.” „Ekki fimm sentimetra,” sagði Tóti oí kikti út fyrir borðstokkinn. „Þetta et" sex sentimetrar.” „Pabbi sagði okkur að fara varlega- „Við eigum bátinn, er það ekki.” „Pabbi hefur aldrei hlaðið bátit"1 svona mikið.” „Æi, hættu þessu voli. Haltu áfra"’ að dorga.” „Þetta er gengið út f öfgar.” „Maður verður að gripa tækifs" þegar það gefst.” Eftir Ásgeir Þórhallsson 48 Vikan 2. tbl. Dabbi hífði færið inn og vafði því á kefliðogsagði: „Ég er hættur." „Já, hættu bara en ég ætla að telja fiskana sem ég veiði héðan í frá.” Dabbi hugðist gera að aflanum en fyrst ætlaði hann að ná i pipuna sem var í úlpuvasanum frammi i stafni. Hann klofaði yfir þóftuna og klöngraðist fram i. reyndi að stinga fætinum niður á milli fiskanna án þess að kremja þá. Nefið á bátnum sökk niður og skyndilega rann aflinn af stað, fram í bátinn. Dabbi hrópaði upp yfir sig og reyndi að stökkva til baka en það var of seint. Stefnið stakkst á kaf og sjór flæddi inn. Fiskar flutu upp. „Báturinn er að sökkva. æpti Tóti. skelfingu lostinn, og gretti sig í framan. Hægt og sigandi sökk báturinn undan fótum þeirra og kaldur sjór læstist um þá. Rassmótorinn dró afturhlutann niður í djúpið á undan. Það sást glitta i hvitan bátinn þar sem hann sveif ofan i blágrænt hyldýpið. Neðansjávar sáust fjórir spriklandi mannsfætur standa neðan úr sjávarfletinum. Þurr Dabba flaut. Bensinbrák myndaðist i kringum skelkaða mennina. Upp úr djúpinu stigu loftbólur. „Fiskarnir minir synda burt.” öskraði Tóti og saup sjó. Dabbi reyndi að taka sundtökin. Hann forðaðist Tóta þvi Tóti baðaði út höndunum eftir einhverju til aðgripa í. „Sparkaðu klofstigvélunum af þér. Þau eru að draga þig i kaf." kallaði Dabbi. „Mér er svo kalt." snökkti Tóti. Mávarnir flögruðu yfir fiskunum sem flutu i bensinblandaðri blóðbrákinni. Ulpa Davíðs liðaðist umdir yfirborðið. Í fjarska brotnaði undiraldan á Kerlingar- skerinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.