Menntamál - 01.08.1935, Blaðsíða 5
MENNTAMÁL
83
Á hvern hátt
á að velja nemendur ( æðri skúla?
Svar Ásgeirs Ásgeirssonar, fræðslumálastjóra.
Það er gömul hugsjön, að stefnt sé að jafnrétti þegn-
anna í öllum þjóðfélagsmálum. Og meðan mannúð og
lýðræði ríkir, mun sú hugsjón stöðugt vaka fyrir þeim,
sem fást við þjóðmál. Jafnréttið er leiðarstjarnan í lýð-
frjálsum löndum. En jafnrétti er ekki sama og full-
kominn jöl'nuður. Manndómur, hæfileikar og þekking
verður aldrei að fullu jafnað. Enda er það sannarlega
ekki keppikefli fyrir þjóðfélagið. Þó höfuðið sé höggv-
ið af einum, þá verður það ekki grætt á annan. Held-
ur er það þjóðarnauðsyn, að nokkrir séu höfði hærri
en allur lýður. Og þar sem mismunur er á náðargáf-
um, er einnig hætt við að munur verði á kjörum manna,
enda fara J^arfir manna nokkuð eftir því, livaða sæti
þeir fylla. Iírafan um jafnréttið er ekki krafa um full-
an jöfnuð í öllum greinum, heldur um jafna aðstöðu
til að njóta sín, án þess að gengið sé á hlut annara.
Og kröfunni er engu síður haldið fram vegna þjóð-
félagsins sjálfs, svo að það fái nolið manndóms og liæfi-
leika þegnanna. Á þessu er fullur skilningur í spurn-
ingunni um það, hvernig eigi að velja nemendur í hina
hærri skóla.
Spurning þessi er víðtæk, og mætti raunar eins orða
hana svo: Hvernig þarf skólakerfi þjóðarinnar að vera
til þess að tryggt sé að hæfileikar manna njóti sin til
fuils fyrir þá sjálfa og þjóðfélagið. Það er undir engu
meir komið en því, hvernig börn og unglingar eru vald-
6*