Menntamál - 01.10.1949, Qupperneq 10

Menntamál - 01.10.1949, Qupperneq 10
68 MENNTAMÁL hvort samhljóði skuli ritast einfaldur eða tvöfaldur. T. d. getur orðið einbeitni skrifast svona eða með tt eftir því hvort miðað er við stofn sagnar eða lýsingarorðs. Sömu- leiðis orðið miljón eða milljón — eftir því hvort miða skal við algengan íslenzkan framburð og rithátt eða latneskan stofn orðsins. — Læt ég svo þessar tvær aðalreglur liggja milli hluta. — En það sem ég á við með mínum freku ummælum um illa lagðan grundvöll, er einkum þetta: 1. Allmikill f jöldi orða á annaðhvort að skrifast á þennan veg eða hinn. 2. Allmörg orð, sem um langan aldur hafa almennt ver- ið skrifuð á ákveðinn hátt, eiga nú að skifta um hljóð- tákn — og það jafnvel þó að við það skapist undan- tekningar frá vissum ritháttarreglum. 3. Ekki er reynt að samræma rithátt orða, sem auðvelt virðist að rita á sama hátt. 4. Reglurnar um notkun z eru færðar svo út í yztu æsar, að þær munu reynast mörgum erfiðar. 5. Skýringar á sumum ritháttarreglum bókanna eru ófullnægjandi. Vil ég nú fara nokkrum orðum um hvert af þessum atrið- um. 1. Þegar flett er upp í stafsetningarorðabókunum, koma mörg orð fyrir, sem annaðhvort má skrifa svona eða á hinn veginn. T. d. skrifaði H. Kr. F. hef og hefur, en síðar varð algengara að rita hefi og hefir. Nú má hafa hvort sem er, enda er nú hvort tveggja notað samhliða. — Hví var algengari reglan eigi látin gilda lengur? Örfá önnur dæmi vil ég nefna: Þolfallið í kk af þessi má vera þennan eða þenna, rita má gera eða gjöra ítar- lega eða ýtarlega, kveld eða kvöld, mylla eða mylna, nýár eða nýjár, orusta eða orrusta, trippi eða tryppi, tagi eða tæi (af þessu f.). Segja má um þessi orð og mörg fleiri, að þessi tvenns
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.