Menntamál - 01.10.1949, Qupperneq 32

Menntamál - 01.10.1949, Qupperneq 32
90 MENNTAMÁL Hún segir ennfremur, að frammi fyrir ströngum kenn- urum verði hún eins og sljó og muni ekkert eða skilji, en sé kennarinn mildur, finnist henni hún geta miklu meira. Hún fær enga vasapeninga og hefur því tekið peninga frá félög- um sínum, sem alltaf hafa nóga peninga. Greindarpróf sýndi, að hún hafði greindarvísitölu 92. Hún nær því sem sagt að hafa meðalgreind. (Greindar- tala 90—110 er talin meðalgreind). Persónuleika- og skapgerðarpróf (Rorschach) leiðir í ljós greinilegar truflanir á tilfinningalífi Rúnu og sýnir, að hún er barnaleg og vanþroskuð. Niðurstaða rannsóknarinnar er, að á fyrsta heimili sínu hefur Rúna augsýnilega fengið of litla umhirðu til að þroskast eðlilega. Hjá frænku sinni hefur hún átt við erfið kjör að búa og aldrei kunnað vel við sig þar. Hún hefur sótzt eftir samúð nágranna sinna til að bæta upp það, sem hún fór á mis heima hjá sér. Hún hefur verið sett í bekk með treggáfuðum börnum sökum þess að hún er orðin á eftir hinum á þroskabrautinni og skortir sjálfstraust. 1 samráði við frænku Rúnu var henni nú útvegað gott fósturheimili, og samtímis var hún flutt úr treggáfaða bekknum í venjulegan bekk. Síðan hefur henni gengið vel bæði á hinu nýja heimili sínu og í skólanum. Þetta er aðeins einstakt dæmi, en segja má, að orsakir erfiðleikanna séu eins margs konar og þau börn, sem koma til skrifstofunnar. Það er því nauðsynlegt að rannsaka hvert tilfelli vandlega, áður en nokkuð annað er gert. Sú reynsla, sem fengizt hefur hingað til, sýnir, að um- hverfið og uppeldið gefur oftast fullnægjandi skýringu á erfiðleikunum. Oftast er það þannig, að orsökina, eða öllu heldur orsakirnar, er að finna á heimilunum eða uppeld- inu fyrstu árin. Skólinn skapar sjaldan erfiðleikana. í versta tilfelli getur hann aukið þá, og er það nokkuð undir atvikum komið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.