Menntamál - 01.10.1949, Blaðsíða 39

Menntamál - 01.10.1949, Blaðsíða 39
MENNTAMÁL 97 hann hafi vald á að haga kennslunni þannig, að hver ein- stakur nemandi njóti sín þann veg, að áhugi hans, starfs- gleði, sjálfstæði og vilji til samstarfs eflist og dafni, 5) að hann ((kennarinn) geti gert sér grein fyrir hæfileikum nemenda og hvers konar framhaldsnám hæfi bezt hverjum um sig, 6) að hann kunni leggja sálfræðileg próf fyrir og dæma um námsárangur, 7) að hann skilji þjóðfélagsað- stöðu nemenda sinna og geti vakið áhuga þeirra á við- fangsefnum lífsins og þjóðfélagsins. — Nefndinni er það fullljóst, að allt þetta muni engum veitast með skólagöng- unni einni saman. Vill hún því, að valið verði úr kennara- efnum, áður en undirbúningi þeirra er langt á veg komið. Fyrirkomulag kennaramenntunarinnar í Svíþjóð hefur fram að þessu verið á þá leið, að barnakennarar hafa sótt kennaraskólana, en framhaldsskólakennarar hafa stundað háskólanám. Nefndin leggur tli, að kennaraskólarnir verði lagðir niður, en í þeirra stað verði komið á fót kennarahá- skólum, sem verði í nánum tengslum við háskólana, en verði þó sjálfstæðar stofnanir, og er fyrirkomulag þessara kenn- araháskóla hugsuð mjög á sömu leið og gert er í lögum um kennaradeild við háskólann hér. Er svo til ætlazt, að allir kennarar, frá yngstu bekkjum barnaskóla til mennta- skóla sæki slíkan kennaraháskóla, og verði námið þar ámóta langt fyrir alla. Hins vegar verði gerðar dálítið mismunandi kröfur um undirbúningsnám. Þó er gert ráð fyrir, að áður en langt líður,fái enginn inngöngu í kenn- araháskóla nema að loknu stúdentsprófi hinu minna (þ. e. 3. b. menntaskólans). Á þetta við um kennara, sem búa sig undir kennslu í yndri deild barnaskóla. Aðrir skulu ljúka stúdentsprófi hinu meira. Gagnfræða- og mennta- skólakennurum skal auk þess gert að skyldu að stunda sér- nám í kennslugreinum sínum við háskóla. Af þeim ástæð- um er lagt til, að kennaraháskólar starfi aðeins í háskóla- bæjum. Hefur nú verið lýst höfuðatriðunum í tillögum sænsku
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.