Menntamál - 01.10.1949, Blaðsíða 49

Menntamál - 01.10.1949, Blaðsíða 49
MENNTAMÁL 107 ar námsbækur ríkisútgáfunnar. Þótti þeim það góður fengur. Auðvitað voru gestunum sýnd söfnin í Reykjavík, eftir því sem tími gafst til. Einnig sáu þeir háskólann og margt af merkilegustu bókunum í safni háskólans, er Björn Sig- fússon bókavörður sýndi þeim. Einnig komu þeir í vinnu- stofu Ríkarðar Jónssonar listamanns og sáu hið merki- lega safn hans af mannamyndum. — Mest hygg ég að þeim hafi fundizt til um safn Einars Jónssonar myndhöggvara. Mánudaginn 11. júlí var blaðamönnum boðið til viðtals við norsku kennarana. Höfðu sumir þeirra óskað eftir því, og rétt þótti að gefa þeim öllum kost á viðtalinu svo og fréttamanni útvarps. Var tekin mynd af þeim við það tæki- færi. Birtist hún í Mbl. daginn eftir. Blaðamenn spurðu margs að vanda, einkum varðandi norsk málefni, svo og álit gestanna á því sem fyrir þá hafði borið hér á landi. Hávard Skirbekk hafði oftast orð fyrir gestunum og gaf hann blaðamönnum góð svör og gild, svo sem menn hafa þegar séð. Blaðamenn túlkuðu samtal þetta vel og sumir ágætlega, en útvarpið miður, þótti sumum er það heyrðu. Brottför. Að kvöldi hins 14. júní héldu þau heimleiðis frk. Gudrun Nesje og H. Skirbekk. Fjöldi kennara fylgdi þeim á flug- völlinn. Þau fóru með Heklu um miðnæturbil. Hinir 4 höfðu ætlað sér að fara með síldarbátum heimleiðis, en síldin vildi ekki koma svo fljótt, að von væri á bátsferð um þetta leyti. Þau urðu því að fara flugleiðis líka, en gátu ekki fengið far fyrr en 19. júlí. Þá daga dvöldu þau hér í Reykja- vík og bjuggu í Miðbæjarskólanum. Daglega var þeim boðið til ýmsra kennara, er þau höfðu kynnzt, svo að dag- arnir liðu fljótt. Þau fóru flugleiðis heim að morgni hins 19. júlí, kl. 7. Þó snemmt væri mættu margir íslenzkir kennarar til að kveðja vini vora og sjá flugvélina svífa með þá út í bláan geiminn. Var þá þessari heimsókn norsku
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.