Menntamál - 01.10.1949, Page 18
76
MENNTAMÁL
kvenkynsorð, þrátt fyrir endinguna ur, eins og t. d. vættur.
Ýmist sést ritað að hafa hraðan á eða hraðann.
Svona löguð atriði, sem óefað finnast mörg, ef nánar er
gáð að, þurfa að ákveðast skýrt í leiðbeiningabókum um
stafsetningu.
I stafsetningarreglunum eru kaflar um „eitt orð eða
tvö.“ Þeir eru skilmerkilegir, en ná of skammt. í skrifum
ýmsra virðist mér sitthvað fleira á reiki í þessum efnum
en það, sem bækurnar sýna. Sama gildir um rithátt sumra
samsettra orða. Þannig sést ýmist ritað landstjóri eða
landsstjóri, heimskaut eða heimsskaut, heigulskapur eða
heigulsskapur. Og svo er um fleiri samsett orð.
Eins og áður er sagt, lúta þessar athugasemdir mínar
ekki að því að gagnrýna aðalatriðin í núgildandi stafsetn-
ingarreglum að öðru leyti en því, að gengið sé of langt í
notkun z í rithætti.
Aftur á móti er ég að andæfa ýmsum afbrigðum frá al-
mennum rithætti, sem um langan aldur hefir verið í góðu
gildi. Byggjast þau einkum á nákvæmari miðun við orð-
stofna en áður hefir tíðkast, svo og „skyldleika“ við önnur
orð, sem sumpart virðist óljós.
I sambandi við orðin skifta og svifta, sem nú eiga að
ritast með p, gat ég þess, að í flestum orðabókum, sem
notaðar eru við nám í málum, væru orð þessi rituð með /.
Svo er í dönsku orðabókinni eftir Fr. G., ensku orðabókum
Geirs Zoega, orðabók Sigfúsar Blöndals og íslenzk-dönsku
orðabókinni eftir Jakob Smára. — Þar er þó orðið afskifti
ritað með p. — Sama er að segja um f í orðunum æfi, æfin-
týri o. s. frv. í sömu orðabókunum eru umrædd orð rituð
með / — nema í orðabók Jakobs Smára. Þar er ævi o. s. frv.
í orðabók Fritzners eru þau einnig rituð með /. En rétt er
að geta þess, að flestar orðabækurnar sýna einnig orðmynd-
irnar ævi og vísa til þess, að þar sé um sama orðið að ræða
og áður var komið, en ritað með / og útskýrt þar. — Af