Menntamál - 01.10.1949, Síða 37
MENNTAMÁL
95
önnur deild þriðja bekkjar á að verða regluleg verk-
námsdeild, öðrum þræði undirbúningsskóli að iðnnámi, en
hinum til almennrar eflingar verklegri menningu. Kennslu-
greinar í þessari deild eru fyrirhugaðar: a) verklegt nám,
b) iðnfræði, c) almennar greinar, aðallega sænska, þjóð-
félagsfræði og heilsufræði og d) leikfimi. Ætlazt er til, að
iðnaðarmenn verði fengnir til kennslu í þessari deild.
Þriðja deild þriðja bekkjar er jafnframt fyrsti bekkur
menntaskóla, og er svo fyrirhugað, að hann geti hvort sem
er heyrt til gagnfræðaskóla eða menntaskóla. Þessum eina
bekk menntaskólanna er ekki skipt í deildir, en að honum
loknum, skiptizt menntaskólinn í þrjár deildir.
Ekki er það skylda allra að ljúka námi með burtfarar-
prófi úr þriðja bekk gagnfræðaskóla. Ætlazt er til að nem-
endum leyfist að fara úr öðrum bekk til framhaldsnáms í
ýmsum sérskólum.
Eins og áður var að vikið, er lagt til, að menntaskólar
verði fjögurra ára skólar. Fyrirkomulagi fyrsta bekkjar-
ins var lýst hér á undan. Þær þrjár deildir, sem taka við af
þeim bekk, nefnast: 1) latínudeild, 2) almenn deild og
3) náttúru- og stærðfræðideild. Latínudeildin er hin eigin-
lega máladeild. Almenna deildin er nýtt fyrirbrigði, og
hefur ekki verið til áður í sænskum menntaskólum, og ég
efast um, að hliðstæð deild sé nokkurs staðar til. Hefði ef
til vill eins mátt nefna hana félagsfræðadeild. Auk sænsku,
ensku og annars tveggja þýzku eða frönsku er þar aðal-
áherzla lögð á þjóðfélagsfræði, sögu, landafræði, sálar-
fræði, líffræði og heilsufræði. Er hún einkum ætluð þeim,
sem búa sig undir að stunda störf félagslegs eðlis. Er stofn-
un slíkrar deildar í fullu samræmi við hinn mikla áhuga
á félagsmálum, sem ríkjandi er í Svíþjóð og áður var um
getið.
Eitt atriði í tillögunum varðandi menntaskólana er tals-
vert frábrugðið því, sem hér þekkist og raunar annars
staðár á Norðurlöndum. Lagt er til, að stúdentsprófi verði