Menntamál - 01.10.1949, Síða 46
104
MENNTAMÁL
bauð forstöðukona húsmæðrakennaraskólans, fr. Helga
Sigurðardóttir öllum ferðafélögunum til kaffidrykkju í
húsakynnum húsmæðraskólans að Laugarvatni, þar sem
hún dvaldi með nemendur sína. Sýndi hún gestum húsa-
kynni skólans og skýrði starfshætti húsmæðraskólans.
Veitt var þarna af mikilli rausn og myndarskap. Voru
margar ræður fluttar undir borðum og sungið á milli. Var
þetta skemmtilegt kvöld. Heyrðist talað bæði íslenzka,
norska, danska og — skandinaviska!
Daginn, sem gestirnir voru um kyrrt í bænum, buðu ýms-
ir einstaklingar til kvöldverðar eða kaffidrykkju. Áður
hefur verið nefnd heimsókn í Hafnarfjörð til Guðjóns
Guðjónssonar skólastjóra og miðdegisverðarboð fræðslu-
málastjóra að Þingvöllum, þar sem veitt var ágætlega og
fræðslumálastjóri bauð gesti velkomna með hlýju ávarpi.
Einnig höfðu þeir skólastjórarnir A. Kr. og Jón Sig. kvöld-
verðarboð fyrir gestina á heimilum sínum og frú Arnh.
Jónsdóttir bauð til kaffidrykkju daginn, sem farið var til
Þingvalla. Alstaðar voru íslenzkir kennarar boðnir með og
alstaðar mættu gestirnir vinsemd og alúð af hálfu hús-
bændanna. Var mikið talað og skipzt á skoðunum um mál-
efni dagsins, en þó mest um aðaláhugamálin: uppeldi og
skóla. Er áreiðanlegt að bæði í þessum heimboðum og á
ferðalögunum fór fram mikilsverð, gagnkvæm kynning,
sem þátttakendum var bæði til gagns og gleði. Það var
spurt og svarað á víxl, bæði um íslenzk og norsk efni, tölu-
vert sungið á báðum málunum og farið með stökur og ljóð.
Var jafnan létt yfir hópnum og auðséð og fundið, að menn
nutu þess að kynnast og vera saman. Þeir fundu áreiðan-
lega til skyldleikans bæði í þjóðerni og starfi.
Þriðjudaginn 12. júlí var kveðjusamsæti í Tjarnar-
kaffi. Sóttu það um 70 manns, flest kennarar og skyldulið
þeirra. Mátti það heita góð aðsókn, þegar sumarleyfatími
stóð yfir og flestir fjarverandi úr bænum. Samsætinu
stjórnaði Jón Sigurðsson skólastjóri, því að form. mót-