Menntamál - 01.10.1949, Page 62
120
MENNTAMÁL
Vér þökkum það, sem danskir kennarar, og danska þjóðin,
hafa unnið í þágu menningar íslenzkra kennara og íslenzku
þjóðarinnar.
Vér óskum þess, að Danmarks Lærerforening megi
jafnan bera hátt fána frelsis og menningar meðal þjóðar
sinnar, svo að hún haldi um aldur og æfi sæti meðal þjóð-
anna, sem hún nú hefur, að vera ein fremsta menningar-
þjóð heimsins, þótt hún sé ein hinna fámennustu.
Vér óskum ennfremur, að frænda- og vináttubönd milli
stétta vorra og þjóða megi ennþá vaxa og styrkjast í ná-
inni framtíð, til hagsælda og menningarauka fyrir báðar
þjóðirnar, æskulýð þeirra, norrænu frændþjóðirnar og
mannkynið allt.
Danmarks Lærerforening og danska þjóðin blessist og
blómgist um aldur og æfi.
Reykjavík, í ágúst 1949.
Uppeldismálaþingið 1949.
í marzmánuði s. 1. bava. sljórn S. í. H. eriiuli i'rá barnaverndarráði
íslands, þar sem farið var fram á, að liöfuðverkefni fyrirhugaðs upp-
eldismálaþings yrði: Verml barna og unglinga. Sambandstjórn varð
við málaleitan þessari, og tókst samstarf við barnaverndarráð um
undirbúiting þingsins.
Við atlxugun varð þessum aðilum ljóst, að barnaverndai'málin voru
það viðamikil málefnaflokkur, að réttlætanlegt þótti að Iiafa þau
eina mál þingsins. Hér þyrfti að hvetja til aukinna átaka og samstarfs
með þeim aðilum er framkvæmd barnaverndarinnar hvílir á, en jxeir
eru: kennarastétt landsins, prestastéttin og þeir fulltrúar ríkis og bæja,
er fara með framkvæmd barnaverndarmála.
Af framangreindum ástæðum var ákveðið að bjóða til þingsetu
formönnum barnaverndarnefnda í kaupstöðum og fjölmennustu kaup-
túnum landsins og þjónandi prestum.
I’ingið var sett í kennaraskólanum 24. júní af formanni S. í. B.
Ingimar Jóhannssyni, en við þingsetningu flutti Bjarni Ásgeirsson
atvinnumálaráðherra ávarp, í stað kennslumálaráðherra, sem var fjar-