Menntamál - 01.10.1949, Page 65
MENNTAMÁL
123
svo og' félagssamtaka að útvega sem flestum unglingum vinnu við
þeirra hæfi. Barnaverndarráði sé gefin skýrsla um árangur þess, hvaðan
sem er af landinu.
i) Heimavistarskólar séu stofnaðir fyrir hörn, sem af ýmsum ástæð-
um ekki er unnt að hafa í venjulegum skólum. Telur þingið, að víða
gætu mörg fræðsluhéruð sameinazt um einn slíkan skóla.
j) Lagt sé sem mest kapp á það bæði af kennurum og prestum að
nota þá ntöguleika. sem fólgnir eru í triiarbragðafræðslu og fcrming-
arundirbúningi til þess að veita börnum og unglingum siðferðilegan
grundvöll og siðferðilegt takmark að keppa að í lífi sínu, fyrst og
fremst með því að gera mynd Krists sem skýrasta í hugum þeirra.
II. Björgun barna og unglinga á glapstigum.
Það er álit þingsins, að á seinustu áratugum, er þúsundir manna
hafa flutzt til kaupstaðanna og mikill hluti þjóðarinnar horfið frá
aldagömlum uppeldisaðstæðum, hafi ekki verið nema að nokkru leyti
séð fyrir jteim uppeldisskilyrðum, er vegið gætu móti þeim, er horfið
var frá. í umróti ófriðar og „eftirstr(ðsára“ virðist og hafa slaknað á
siðferðiskennd þjóðarinnar, mat á verðmætum raskazt og stundar-
munaður metinn meir en það, sem varanlegt menningargildi hefur. Við
frumbýlingshætti þjóðarinnar í nýjum heimkynnum og við ný við-
horf hefur ískyggilega mikill fjöldi barna og unglinga villzt til laus-
ungar og lögbrota. Má telja víst, að þessar ]) jóðfélagsmeinsemdir
verði stöðugt ægilegri, sé ekki búizt til skeleggrar varnar og beitt þeim
aðgerðum, sem skylt er að beita í hverju menningarþjóðfélagi. Vitað
er, að allstór hópur barna hcfur leiðzt út í hnupl, þjófnað, innbrot,
spellvirki, lauslæti og áfengisnautn. Verður sá hópur smám saman
stærri og stærri. sem ekki er hægt að bjarga við þær aðstæður, sem
nú er við að búa. Er þvf hætt við, að margir þessara unglinga verði
annaðhvort vandræða- eða afltrotamenn, sé ekki nú þegar hafizt handa
um nauðsynlegar ráðstafanir. Þess vegna leggur uppeldismálaþingið
til það, er hér fer á eftir:
a) Hæli fyrir fávita og geðveik börn séu sett á stofn sem allra
fyrst.
b) Upptökuheimili fyrir börn og unglinga, sent villz.t hafa á glap-
stigu, sé byggt á hentugum stað í nágrenni Reykjavfkur. Verður það
fyllilega að svara kröfum nútímans. Skal þar fara frant atliugun á
hverjum einstaklingi, áður en honum er ráðstafað lil frambúðar.
c) Reist verði uppeldisheimili, skv. 37. gr. barnaverndarlaganna,
handa drengjum 8—12 ára gömlum, sem ráðstafa þarf til langdvalar.
Heimili þetta sé fjarri Reykjavík eða öðrunt stærri bæjum, þar sem
land er til búreksturs og jarðhiti til gróðurhúsareksturs.
d) Stofnað sé uppeldisheimili handa 12—lfi ára drengjum, sem