Menntamál - 01.10.1949, Page 66
124
MENNTAMÁL
framið liafa lögbrot eða eru á annan hátt á glapstigum svo og eldri
unglingum, skv. 28. gr. barnaverndarlaganna. Sé heimilinu valinn
staður með tilliti til ræktunar, búreksturs og markaðsmöguleika.
e) Reist sé uppeldisheimlii handa 12—16 ára stúlkum, sem eru á
glapstigum svo og eldri unglingum, skv. 28. gr. laganna, og séu til-
svarandi starfsskilyrði höfð í liuga og við lieimili drengjanna.
f) Menntamálaráðherra skipi nú þegar nefnd sérfróðra manna
til þess að gera nánari tillögur um stofnanir lpessar og framkvæmdir,
sem þær snerta. Ennfremur sé þeirri nefnd falið að rannsaka og
gera tillögur um með hverjum hætti unnt verði að koma atvinnu-
litlum afbrotaunglingum í fasta arðbæra vinnu lil sjávar eða lands.
Uppeldismálaþingið lítur svo á, að samræma þurl'i starfshætti barna-
verndarnefnda i landinu, svo að framkvæmd barnaverndarlaganna
verði með svipuðuin hætti um land allt. Þingið beinir því eftir-
farandi tilliigum til Barnaverndarráðs íslands:
I. Reglugerðir urn barnavernd verði settar fyrir kaupstaði og kaup-
tún landsins.
II. I kaupstöðum og stærri kauptúnum verði öllum unglingum á
aldrinum 12—18 ára gert að skyldu að bera aldursskírteini (vega-
bréf) til að sýna í kvikmyndahúsum, opinberum skemmtistöðum
og annars staðar, þar sem dvalarleyfi er bundið við vissan aldur.
III. Látin sé fara fram athugun á því, hvort ekki sé rétt að hafa
aðeins eitt aldursstakmark unglinga við banni að kvikmyndum,
í staðinn fyrir þrjú, eins og nú er gert.
IV. Gerð séu eyðublöð fyrir tilkynningar um ráðstöfun á börnum i
umdæmi annarrar barnaverndarnefndar i samræmi við 29. gr.
laga um vernd barna og ungmenna.
Uppeldismákiþingið leyfir sér að mæla mjög eindregið gegn því að
bæjarstjórnir hver í sínu umdæmi leyfi atvinnurekstur, sem eykur
siðferðilegar hættur og fréistingar barna og unglinga. Þingið vill þai
til nefna ýmsa veitingastaði, hinar svo nefndu „sjoppur", sem margir
nefna nú barnaknæpur, því að veiúngastaðir Jressir eru nær ein-
göngu sóttir af börnum og unglingum. Benda má á, að vörur, sem
þarna eru á boðstólum, eru dýrar og óhollar til neyzlu.
ÚTGEFANDI: SAMBAND ÍSLENZKRA liARNAKENNARA.
Ú tgdfustjórn:
Árrnann HaUdórsson ritstj., Jón Kristgeirsson og Þórður J. Pálsson.
Prentsmiðjan ODDI h,K