Menntamál - 01.10.1953, Síða 4

Menntamál - 01.10.1953, Síða 4
70 MENNTAMÁL ur hans snemma til ritstarfa og athugana á náttúrunni í kringum hann, einkum grösum og blómum. Nokkru eftir fermingaraldur fór Guðmundur til móS- ur sinnar og stjúpa að Kvíakoti í Þverárhlíð. Var hann þar um sex ára skeið. Þar var ærið að starfa og minni tími til bóklesturs og náttúruskoðunar en verið hafði á Ásbjarnarstöðum. Fjögur síðustu árin, sem hann var heimilismaður í Kvíakoti, var hann í fiskiveri á Akranesi og Seltjarnarnesi þá tíma árs, sem minnst var þörf fyrir hann heima. Þegar Guðmundur var um tvítugt, kom út ljóðakver eftir hann, er nefndist ,,Fjóludalur“. Útgefendur kvers- ins voru bændur tveir á Seltjarnarnesi, er Guðmundur hafði komizt í kynni við. Þó að skáldskapur þessi þætti ekki mikils verður og kverið hlyti misjafna dóma, vakti það athygli góðra manna á hinum unga höfundi, enda bar það glöggan vott um menntaþrá hans og hneigð til andlegra starfa. Svo segir Guðmundur sjálfur: „Jón Jóns- son landritari las hana (þ. e. kvæðabók Guðmundar), og þótt ég væri honum alveg vandalaus og hann hefði aldrei séð mig fyrri, þá sendi hann strax eftir mér og bauðst til að kosta upp á menntun mína. Ásamt útgef- endum ritsins og Brynjólfi Magnússyni í Nýjabæ hjálp- aði hann mér til að sigla til Noregs og læra þar á skóla og menntast, ferðast og framast um öll Norðurlönd í 6 ár, og hann reyndist mér allt til dauðans eins og bezti faðir og vinur.“ Haustið 1875 var það, að Guðmundur hélt til Noregs. Hann gerðist nemandi í Gausdal, hinum kunna lýðhá- skóla Kristófers Bruun. Varð hann þar fyrir miklum og djúptækum áhrifum af hugsjónum og skólastefnu Kristó- fers Bruun og félaga hans. Bar hann menjar dvalarinn- ar þar alla ævi. Á öðru ári sínu í Noregi hóf Guðmundur að rita í norsk blöð og halda fyrirlestra um ísland. Fór hann í þeim er-

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.