Menntamál - 01.10.1953, Side 14

Menntamál - 01.10.1953, Side 14
80 MENNTAMÁL in mikilvægasta einkunnin, enda er þetta skyldunáms- grein, sem þó er ekki kennd í neinni sérstakri kennslu- stund. Skyldunámsgreinar eru annars víðast aðeins tvær í gagn- fræðaskólum. Enska er alstaðar skyldufag, þar sem ég þekki til, enda nauðsynlegt, þar eð mörg börn eru tæp- lega talandi á enska tungu, er þau koma í skóla. Þá er Bandaríkjasaga víðast skyldufag, að minnsta kosti nokk- ur ár. í sambandi við sögukennslu þessa er kennt um stjórnarskrá landsins, kosningalög, stjórnmál, sveita- stjórn og yfirleitt um allar þær kröfur, sem nútíma þjóð- félag gerir til borgaranna, og um siðferðilegar skyldur borgaranna við þjóðfélagið og náungann. Víðast er og mikil landfræðikennsla í sambandi við sögukennslu þessa. Þá er og stærðfræði víða skyldunám, þó þannig að ekki eru skyldunámsgreinar fleiri en tvær eða þrjár. Þá geta nemendur valið 1—3 námsgreinar þessu til viðbótar. Eng- inn getur haft meira en 5 námsgreinar í einu auk fim- leika. Ef nemandi er sæmilega vel gefinn til bókar og vitpróf sýna meðalgreind eða meira, þá grennslast leið- beinandi skólans eftir því, hvort hann hafi áhuga á ein- hverju sérstöku bóklegu námi. Setjum t. d. að nemandi segi, að sig langi til þess að verða læknir. Þá verður hann að taka líffæra- og líffræði, heilsufræði o. fl. Ef námið sækist illa, þá er brátt grennslazt eftir, hvernig á því standi. Er áhuginn tekinn að dvína, eru það heimilis- ástæður o. s. frv. ? Ef um áhuga- og hæfileikaskort er að ræða, þá fær nemandi að vita að hann geti ekki orðið læknir, og að honum sé betra að taka hæfnispróf og reyna að finna annan starfa, sem betur eigi við hann. Ef nemandi aftur á móti er seinn til bóklegs náms, en sýnir t. d. nokkra handlagni, þá er honum ráðlagt að taka t. d. þrjár stundir daglega í verklegu, t. d. trésmíðar, múrverk, rafmagnsfræði, vélaviðgerðir, einkum bifvéla

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.