Menntamál - 01.10.1953, Blaðsíða 26
92
MENNTAMÁL
og vai' boðið í langa og skemmtilega ferð, daginn áður
en mótið hófst. Var siglt inn eftir löngum, djúpum firði,
er Lysefjord heitir. Er fjörður þessi með snarbröttum,
hrikalegum fjöllum beggja vegna. Var ekið hátt upp í
fjallshlíðina öðrum megin fjarðarins, er við höfðum stigið
á land innst í firðinum. Sama megin við fjörðinn eru raf-
orkuver Stafangursborgar, djúpt inni í bergi fjallsins,
og skoðuðum við þau.
Kvöldið eftir að mótinu lauk, hélt ég með næturlest
aftur til Óslóar. Nú var ég loks frjáls maður og hugði
gott til að kynnast Ósló, betur en ég átti kost á, meðan
annir mótanna hvíldu á mér.“
Varðstu fyrir nokkurum vonbrigðum af þeim kynnum?
„Síður en svo. Mér þykir Ósló fögur og mikil menn-
ingarborg."
IleUji Elíasson fræðslumálastjóri
hcfur liaft um það góð orð að segja lesendum Menntamála sitthvað
frá þeim kynnum, sem hann hafði af skólamálum í Bandarikjunum á
ferðalagi sínu þar vestra síðast liðinn vetur og vor.
Íslenzkir slcólamenn í boði BandaríJcjastjórnar.
Þrír íslenzkir skólamenn dveljast um þessar mundir í Bandaríkjun-
uin í hoði Bandaríkjastjórnar þau GuÖjón GuÖjónsson skójastjón,
Hafnarfirði, Helga SigurÖardóttir skólastjóri, Reykjavík og Jóhann
Frimann yfirkennari, Akureyri.
Munu þau dveljast ]tar um sex mánaða skeið og kynna sér skóla-
mál og þjóðlíl.