Menntamál - 01.12.1957, Blaðsíða 33
MENNTAMÁL
223
lækna þá. Nútíma menningarþjóðir leggja því mikla rækt
við heilsuvernd, og vex sú starfsemi jafnt og þétt.
2. Nú orðið ræður sá skilningur á hlutverki skóla, að
honum beri ekki einungis að skila nemendum sínum
óskemmdum af skólavistinni, heldur skuli hann eiga virkan
þátt í að efla hreysti þeirra og þrek og skila þeim einnig
að því leyti hæfari en ella.
3. Skólar eru vettvangur, þar sem auðvelt er að ná til
allra einstaklinga á tilteknum aldri, og almenn heilsu-
vernd er að kalla óhugsandi án rækilegs heilbrigðiseftir-
lits í skólum.
4. Orsakir mjög margra sjúkdóma, sem í ljós koma á
fullorðinsárum, má rekja til vaxtaráranna. Ungviði eru
viðkvæm, meðan þau eru í vexti, og auðvelt er að ofbjóða
heilsu þeirra og þreki, ef ekki er verið vel á verði. Þau eru
einnig mjög næm fyrir smitsjúkdómum, en sífelld áföll
af völdum slíkra sjúkdóma smáslíta líkamanum, svo að
hann gengur fyrr úr sér en ella. Á bernsku- og æskuárum
er lagður grundvöllur að venj um manna í hugsun og hegð-
un, en þæT verða með nokkrum hætti hluti af mönnum
sjálfum, og veitist fulltíða fólki ærið erfitt að breyta
þeim, þó að á því kunni að vera fullur vilji. Óhollar venj-
ur eiga ekki lítinn þátt í að brjóta andlegt og líkamlegt
þrek manna, þegar til lengdar lætur, og koma afleiðing-
arnar einkum í ljós eftir fertugs aldur, ýmist í óljósri
vanlíðan eða misalvarlegum sjúkdómum. Verður því seint
lögð nægilega rík áherzla á að koma börnum og ungling-
um yfir vaxtarskeiðið andlega og líkamlega hraustum og
að kenna og temja þeim hollustusamlegar lífsvenjur og
starf svenj ur.
5. Skylduskólaganga er fyrsta kvöð, sem þjóðfélagið
gerir til barna sinna. Hún hefur í för með sér allmiklar
breytingar á lífi þeirra, bindur þau innan húss og krefst
sívaxandi kyrrvistar, einmitt á þeim árum þegar hreyfi-
þörf er mikil. Sjálft námið er erfið vinna, þegar fram í