Menntamál - 01.12.1957, Page 44
234
MENNTAMAL
ÁGÚST SIGURÐSSON:
Valfrelsi?
Á gagnfræðaskólastig-
inu og menntaskólastiginu
hafa Bandaríkjamenn,
Bretar og sumar aðrar
þjóðir töluvert valfrelsi
fyrir nemendur um það,
hvaða greinar þeir vilji
leggja áherzlu á í skólan-
um. — í Bandaríkjunum
mun þetta valfrelsi ganga
lengst, enda er nemendum
þar, í sumum fylkjum,
sett að verulegu leyti í
sjálfsvald, hvaða náms-
greinar þeir vilja læra,
nema hvað enska, reikn-
ingur og saga Bandaríkj-
anna eru skyldunáms-
greinar. Fordæmi þessarra þjóða er athyglisvert, og telja
má víst, að þeir hafi ekki tekið upp þessa tilhögun að
nauðsynjalausu. Hér á landi hefur oft verið minnzt á
námsleiða. Kennarar hafa oft — vafalaust með réttu —
minnzt á það, að ókleift sé að láta alla nemendur í sama
aldursflokki tileinka sér sama efni. Því hvort tveggja er,
að framsetning námsefnis í kennslubókum þyrfti að vera
með öðrum hætti fyrir þá, sem eru seinir að læra og þurfa
miklar endurtekningar og útskýringar, heldur en fyrir
„námshestana" — og prófkröfur ættu að vera mismun-
andi í grundvallaratriðum. — En er ólíklegt, að ungling-