Menntamál - 01.12.1957, Síða 55
MENNTAMÁL
245
brátt mun þó hafa slitnað upp úr þeim. En ást þessa
manns á íslandi er fullreynd, og enn er hann brennandi
í andanum um að eiga hvers konar samskipti við okkur. —
Fulltrúar annarra Norðurlanda fluttu einnig kveðjur á
samkomunni. Helgi Elíasson fræðslumálastjóri talaði af
Islendinga hálfu. — Auk þessa léku fimleikakonur listir
sínar á samkomunni, dansmenn, hljóðfæraleikarar og söng-
menn, en mest var þó vert um flutning reyndra lista-
manna og ungra sveina og meyja á þáttum úr Kalevala,
og var kantele slegin undir.
Finnar höfðu í hvívetna vandað til þinghaldsins, og
rausn þeirra og fyrirgreiðsla öll var með ágætum. Einnig
bauð aðalræðismaður íslendinga í Helsinki Eiríkur Juur-
anto og frú hans íslenzku fulltrúunum til ágætrar há-
degisveizlu.
Tor Therman rektor var framkvæmdastjóri þingsins,
reiðubúinn að leysa hvers manns vanda.
íslenzka ríkisstj órnin veitti nokkurn ferðastyrk, og Arn-
grímur Kristjánsson hafði ásamt Helga Elíassyni fræðslu-
málastjóra og Magnúsi Gíslasyni námsstjóra mest erfiði
af undirbúningi ferðarinnar hér heima, en Helgi Þorláks-
son undirbjó komu íslendinganna til Helsinki, en hann var
þar fyrir.
Ekki er annað vitað en íslendingunum farnaðist öllum
vel og væru þeir ánægðir með förina.
Þessir íslendingar sóttu kennaraþingið:
Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra.
Guðrún Vilmundardóttir, frú.
Helgi Elíasson, fræðslumálastjóri.
Hólmfríður Davíðsdóttir, frú.
Birgir Thorlacius, ráðuneytisstjóri.
Sigríður Thorlacius, frú.
Arngrímur Kristjánsson, skólastjóri, Reykjavík.
Áslaug Eiríksdóttir, kennari, Reykjavík.
Axel Kristjánsson, kennari.